Rólegur maí mánuður

27.maí 2007

Eftir góða byrjun dalaði veiði verulega í maí bæði í Minnivallalæk og á silungasvæði Breiðdalsár.

Apríl var mjög góður í Minnivallalæk en stífar norðanáttir og kuldi hafa verið nánast samfellt flesta daga síðan þá og það kemur niður á veiði. Hefur verið að kroppast upp einn og einn fiskur á dag við erfið skilyrði. Þó rofi aðeins til virðist vatnið vera kalt og þarf alvöru hlýindi og líklega úrkomu til að koma hreyfingu á fiskinn.
Sama sagan er  í Breiðdalsá. Frábær veiði var í hitabylgju í byrjun maí er veiði hófst, og mikið vart við sjóbleikju bæði við Brú og upp við Neðri-Grjóttanga. Veitt hefur verið flestar helgar síðan þá en aðstæður erfiðar, kalt, rok og lítið vatn. Þó hafa komið skot, einn daginn fengust 20 bleikjur en svo datt allt niður í sama farið.

En það spáir hlýnandi og allar líkur á að staðan breytist með suðlægum áttum næstu daga og þá ætti að færast fjör í veiðina aftur.

 
Laus veiðileyfi hafa verið uppfærð og vil ég vekja sérstaka athygli á því að ennþá er laust á góðum tíma nokkur holl í ágúst í Laxá í Nesjum. Almennt er lítið um laus laxveiðileyfi á markaðinum og ekki spillir hóflegt verð í Laxá og góð gistiaðstaða fyrir veiðimenn (sjá mynd). Nýlega var gengið frá því að þetta einbýlishús að Hraunhól 2 sem er í Nesjahverfinu rétt við ánna yrði veiðihús sumarið 2007. Þar eru tvö svefnherbergi, baðherbergi, stofa og verönd, svefnaðstaða fyrir 4-5 manns. 

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is


Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is