Fyrir helgi kom út söluskrá okkar og er hún nú í pósti til þeirra fjölmargra sem eru á póstlista okkar út um allt land. Einnig er búið að dreifa henni í sportvöruverslanir í Reykjavík og stendur til að dreifa henni víðar út á landi á næstu dögum.
Að þessu sinni er hún óvenju vegleg eða 36 síður með glæsilegum myndum ásamt öðru efni sem tengist því sem Veiðiþjónustan Strengir hefur upp á að bjóða.
Gunnar Bender aðstoðaði við gerð söluskrárinnar og safnaði auglýsingum, ásamt því að Jóhann Páll Kristbjörnsson sá um umbrot.
Hægt er að skoða söluksránna einnig hér á vef okkar. Skoða söluskrá!
Mikið er þegar bókað en á vefnum má sjá nánari upplýsingar um verð veiðileyfa og einnig laus veiðileyfi. |