
|
Hann er á í Réttarstreng í Hrútu.. |
|
Hrútafjarðará: Þegar talið var úr veiðibók kom í ljós að laxveiðin var frábær eða 431 laxar þrátt fyrir þurrkatíð og erfið skilyrði í júlí og ágúst. Þar með er ljóst að þetta var fimmta besta árið í sögu Hrútafjarðará og ef aðstæður hefu verið betri hugsanlega orðið annað eða þriðja besta árið! Ljóst er að hóflegar seiðasleppingar eru að halda veiðinni á góðu róli miðað við að niðursveifla var almennt í öðrum húnverskum veiðiám. Stærsti laxinn var áætlaður 11 kg. og 105 cm, en honum var sleppt aftur. En sjóbleikjuveiðin er á niðurleið eins og víða annarsstaðar, en slettar 100 bleikjur voru færðar til bókar. Stærsta bleikjan var 3 kg., en einnig var töluvert af 2+ kg. bleikjum í aflanum. Fyrir misskilning taldi veiðimaður sig hafa fengið 5 kg. bleikju snemma sumars en síðar kom í ljós að um var að ræða lax! Leiðréttist það hér með, þó seint sé.
Réttarstrengur var sem fyrr besti veiðistaðurinn, en staðir eins og Ármótin og Staðartunguhylur gáfu líka ágætlega.
|
Í Síká veiddust 55 laxar sem er mesti fjöldi síðan fluguveiði var eingöngu leyfð á svæðinu fyrir um 10 árum ef ég man rétt. Ný sleppitjörn í Síká stendur fyrir þessarri auknu veiði að talið er. Veiðimenn voru mjög ánægðir með breytingarnar sem gerðar voru á veiðihúsinu fyrir sumarið, en bætt var við herbergi með baði og þurrkherbergi fyrri veiðifatnað, ásamt nokkrum öðrum endurbótum. Fyrir sumarið 2008 verður ný verönd og heitur pottur komin og þar með er aðstaðan orðin mjög góð fyrir gesti hússins.
|

|
Laxi sleppt aftur í Breiðdalsá í júlí sl.. |
|
Breiðdalsá: Við nánari skoðum veiðibókar kom í ljós að af 873 löxum veiddum hafði 376 verið sleppt aftur eða 43% af veiðinni. Er það nokkuð hátt hlutfall og hefur farið stighækkandi undanfarin ár. Veiðimenn hafa verið hvattir til að sleppa hrygnum eða setja þær í klakkistur fyrir fiskræktina og verða settar jafnvel harðari reglur um það á næsta ári.
Sérstakt átak var gert í að merkja laxa með útvortis númeruðum merkjum til að kanna endurveiði og dreifingu laxins um ánna. Var 71 lax merktur á tímabilinu 26. júlí til 7. september og veiddust 26 laxar aftur eða 37%. Þar af fékkst einn þrisvar en reyndar voru einungis 10 löxum sleppt aftur við fyrstu endurveiði, aðrir drepnir eða settir í klakkistur, svo einn af þessum 10 veiddist í þriðja sinn! Einn lax sem var veiddur og sleppt upp í Tinnudalsá um miðjan ágúst veiddist síðan aftur 29. september í Stöðvará sem er í næsta firði norðan við Breiðdalsvík! Einn veiddist á sama veiðistaðnum í Breiðdalsá daginn eftir V/S, og tveir aðrir fengust líka daginn eftir V/S en almennt liðu tvær vikur eða meira á milli í endurveiði. |
Sextán endurveiddust ofan sleppistaðar en níu neðan sleppistaðar.
Af þessu má ráða að um 140 laxar hafi veiðst aftur þrátt fyrir að merkingar hófust töluvert seint á veiðitímanum og má leið rök að talan sé jafnvel aðeins hærri ef tekið væri líka mið af fiski sem var V/S fyrr um sumarið.
|

|
Frá Laxá í Nesjum. |
|
Laxá í Nesjum: Þessi á stimplaði sig hressilega inn sem laxveiðiá í sumar. Samtals veiddust 182 laxar á stangirnar tvær þrátt fyrir að laxinn komst ekki á ánna fyrr en í byrjun september vegna þurrka! En greinilega beið mikill lax fyrir neðan því í Ármótahyl fengust í júlí og ágúst á milli 50-60 laxar og oft mikið líf í hylnum. En síðustu þrjár vikurnar í september gáfu síðan um 130 laxa um alla á og vakti athygli hvé smálaxinn var vænn, enda ekki nema von því sérstökum stórseiðum hafði verið sleppt á ánna vorið 2006. Minn var af silungi en oft áður en þó einhver reytingur af honum. |
|

|
Frá Fossá |
|
Jökla og Fögruhlíðará: Þetta fyrsta ár Strengja á svæðinu gekk mjög vel, samtals fengust 120 laxar, 324 bleikjur ásamt 51 urriðum og sjóbirtingum. Jökla sjálf var að mestu óveiðandi vegna þess að botnlokurnar voru opnaðar snemma sumars í Kárahnjúkastíflu og áin því mjög lituð út veiðitímabilið til 30. september. En nokkrar þverár hennar gáfu ágæta laxveiði, mest Kaldá með 75 laxa, Laxá 14 og Fossá 11 laxa. Fögruhlíðará hefur ekki verið þekkt fyrir laxveiði en þó fengust 20 laxar þar í sumar. Sjóbleikjan þar á ósasvæðinu er vel þekkt, þar voru færðar til bókar 203 bleikjur, flestar fyrri hluta sumars og um vorið. En Kaldá gaf líka töluvert af vænni bleikju eða um 100 stk. og mest síðsumars líkt og laxinn.
Mikið var lagt í uppbyggingu á svæðinu í ár, glæsilegt nýtt veiðihús var tekið í notkun, ásamt því að seiðasleppingar og klakveiði heppnaðist ágætlega svo vel horfir með framtíðina þar. |
|

|
Stórurriði úr Minnivallalæk veiddur í septemberlok! |
|
Minnivallalækur: Samtals fengust 388 fiskar í Minnivallalæk sem er aðeins aukning frá fyrra ári. Stærstu urriðar voru áætlaðir 5 kg, en samtals voru 15 urriðar 4 kg. eða stærri í sumar. Veiðin var betur dreifð yfir veiðitímann frá apríl til septemberloka en oft áður og er það ánægjulegt. En hluti af skýringunni er eflaust sú að bókanir voru líka betri nú síðari hluta veiðitímans en áður hefur verið. Reyndar getur september verið mjög góður eins og sést í frábæru myndbandi sem erlendir veiðimenn gerðu er voru þar meðal annars á ferð haustið 2005, sjá hér.
|
|
|
Rjúpnaveiði: Nú fer í hönd á næstu dögum rjúpnaveiði og verður boðið upp á tvo pakka á vegum strengja í nóvember, frá Veiðihúsinu Eyjar í Breiðdal og Hálsakoti í Jökulsárhlíð. Höfum aðgang að nokkrum svæðum frá báðum húsum. Uppábúinn rúm og hægt að velja um fullt fæði eða elda sjálfir. Megnið er uppbókað en vegna forfalla eru nokkur pláss laus núna 1-4 nóvember í Eyjum og 22-25 nóvember í Hálsakoti. Spyrjið um nánari upplýsingar. |