Nú styttist í að okkar fyrsta opnun verði, en á sunnudag hefst veiði í Minnivallalæk. Er það Aðalsteinn G. Jóhannsson og félagar sem eru svo heppnir að taka fyrstu köstin líkt og undanfarin tvö ár. Fyrir ári síðan var opnun glæsileg, eftir fyrstu klst komu frá honum eftirfarandi skilaboð:
"10 á klukkutíma í Stöðvarhyl, stærsti um 5 kg held ég og enginn undir 2 kg...Nú er ég hættur!"
En ég efa að menn stoppi nú og verður spennandi að bíða eftir fréttum á sunnudaginn. Verður þeim skellt þá strax á vefinn hjá okkur ásamt myndum.
Megnið af vorinu er bókað upp í Minnivallalæk, en þó er ennþá laust eitt holl í apríl, 22-24 apríl, einnig einn dagur laus eftir hádegi 3 maí til hádegis 4 maí. Tvö holl eru laus í maí, 6-8 og 22-25 maí og svo síðustu dagar maí mánaðar frá 28 til 1 júní. Eftir það ekkert laust fyrr en í júlí!
|
 |
Stórurriða sleppt aftur í Minnivallalæk í opnun fyrir nokkrum árum. |
|