10 urriða á land fyrsta daginn í Minnivallalæk þrátt fyrir kulda!

1.apríl 2008

Það var eins gott að vera vel klæddur í veiðina snemma í morgun þegar veiðimenn fóru til veiða í Minnivallalæk. Er litið var á hitamælinn utan á Veiðihúsinu Lækjamót var hitastigið mínus 8 gráður og hávaða rok! En eftir hálftíma veiði var Aðalsteinn Jóhannsson þó búinn að fá þann fyrsta í Stöðvarhyl og þeir áttu eftir að vera fleirri hjá honum og félögum áður en yfir lauk í dag. Það var sett í mikið af fiski þrátt fyrir kuldalegar aðstæður, en hann tók grant og menn misstu marga. Samtals komu á land á ýmsar flugur þó 10 urriðar af stærðinnu 1 - 2,5 kg og öllum var sleppt aftur eins og lög gera ráð fyrir. Nú var veiðin dreifðari en oft áður í opnun, voru 4 fiskar einungis úr Stöðvarhyl, aðrir miðsvæðis í Viðarhólma, Djúphyl og Arnarhólsflúð. Ekki náðist á fyrsta degi að veiða staði neðar í ánni en þar verður örugglega líka reynt næstu daga.

Ekki er annað hægt að segja en byrjuninn hafi farið vel af stað í þessum kuldabola í uppsveitum Rangárvallasýslu og verður fylgst þar náið með gangi mála hér á næstunni.

Næsta opnun hjá Strengjum verður 1.maí á silungasvæði Breiðdalsár.

 

Minnivallalækur

Aðalsteinn búinn að setja í þann fyrsta kl. O7:30 í morgun í Stöðvarhyl.

Minnivallalækur

Árni Þór Árnason stuttu síðar með sinn fyrsta fisk, en stór snjóskafl er neðarlega í hylnum.


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is


 
Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is