Glæsileg byrjun í Breiðdalsá!

1.júlí 2008

Fyrsta vaktin í morgun byrjaði frábærlega í laxveiðinni í Breiðdalsá. Náðust 7 laxar á land og þrír aðrir sem fóru af, svo samtals var sett í 10 laxa þennan morgun. Allir nema einn veiddust á flugu, aðallegar á Rauðar Frances flugur. Tveir laxar komu úr Einarshyl og einnig úr Neðri-Beljanda, einn úr Möggustein, og úr Tinnu kom lax úr Bryggjuhyl og Stapabreiðu. Voru það bæði stórlaxar og smálaxar sem veiddust og flestum var sleppt aftur í ánna. Allir voru lúsugir. Vel er bókað í ánna í sumar en þó eru einhverjar lausar stangir á víð og dreif yfir sumarið eins og sjá má á vef strengja.

Einnig hófst veiði í Hrútafjarðará og varð vart við laxa neðst í Dumbafljóti en enginn kom þó á land. Sést hafði til laxa ofar í ánni í Bálk fyrir nokkrum dögum, svo einhver lax er komin í ánna.

Veiði hefst fljótlega í Laxá í Nesjum og verða fréttir síðar af því.

Breiðdalsá Breiðdalsá
Högni Harðarson með fyrsta laxinn í Breiðdalsá við Bryggjuhyl í Tinnu. Ólafur R. Garðarsson leiðsögumaður með stórlax við Möggusteinn í morgun.

 


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is


 
Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is