Risaurriði úr Minnivallalæk!

3.apríl 2008

Nýtt holl byrjaði með látum eftir hádegi í dag í Minnivallalæk, fengu á fyrstu vaktinni 9 fiska af öllum stærðum og þar af einn af höfðingjum árinnar, úr Hólmakvíslum 7.5 kg hæng sem var 81 cm langur og sjá má hér á myndum. Veiðimaðurinn er Ingólfur Gissurarson fasteignasali hjá Valhöll sem veitt hefur þá nokkra væna, en aldrei slíkan urriða auðvitað áður. Tók fiskurinn heimatilbúna flugu sem skýrð hefur verið Golli. Blæddi úr honum og varð að drepa hann, og mun fiskurinn verða uppstoppaður og hafður á vegg í Veiðihúsinu Lækjamót í Minnivallalæk í framtíðinni.

Óhætt er að segja að byrjuninn hefur verið frábær í Minnivallalæk þrátt fyrir slæmar aðstæður, en vel á þriðja tug fiska hafa veiðst þar nú þegar og veiði ágætlega dreifð um lækinn. Veiðimenn telja sig hafa sett í tvo önnur svona tröll í Stöðvarhyl sem hafa sloppið eftir hörkuviðureignir og þeir eru
örruglega fleirri risar á sveimi í læknum!  

Minnivallalækur

 

 

Minnivallalækur Minnivallalækur
   

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is


 
Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is