Silungsveiðin hafin í Breiðdalsá |
3. maí 2008 |
Það var vægast sagt ekki vorlegt um að litast í Breiðdal að morgni 1. maí er fyrstu veiðimenn hófi veiðar á silungasvæði Breiðdalsár snemma um morguninn.
Norðan hávaðarok og hitastig við frostmark, enda var lítið vart við bleikjuna í "öldurótinu" niður við ós við þessar aðstæður. Því var farið í uppánna fyrir ofan fossinn Efri-Beljanda eftir hádegi og reynt að finna urriðann frekar í þessum aðstæðum. Það gekk eftir og þar á meðal fékkst einn vænn urriði sem viktaði 3 kg og fékkst á veiðistaðnum Nestagl. Veiðimaðurinn Sigurbjörn Árnason frá Hornafirði heldur hér á honum fyrir utan Veiðihúsið Eyjar, glæsilegur fiskur og skemmtileg byrjun á svæðinu. Spáð er batnandi veðri og þá ætti sjóbleikjan líka að fara að gefa sig á ósasvæðinu á næstunni.
|
|

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.
Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is
|