En 4. júlí verður líka í minnum hafður því þennan sama dag veiddist líka stærsti silungur sem vitað er að hefur veiðst í Breiðdalsá! Var það Ólafur R. Garðarsson leiðsögumaður sem setti í þennan urriða sem sést hér á myndinni. Veiðistaðurinn var Klapparhylur fyrir neðan veiðihúsið og mældist hann 77 cm að lengd og áætlaður um 15 pund að þyngd, en þó einnig hugsanlega mun stærri enda urriðar að öllu jöfnu mun þyngri miðað við lengd ef miðað er við laxa. Ekki fæst úr því skorið því honum var einnig sleppt aftur í Breiðdalsá. Báðir fiskarnir tóku þýska Snældu, ótrúleg tilviljun!
Nú er komin á forsíðu á vef strengja veiðibók þar sem verður færð inn laxveiðin í Breiðdalsá í lok hvers veiðidags í sumar. Frábær kostur til að fylgjast með okkar helstu laxveiðiá sem er nú að sanna sig sem ein af betri ám landsins, bæði í fjölda laxa og ekki síður sem stórlaxaá. Fjörið er rétt að byrja í Breiðdalnum! |