Laxinn mættur í Hrútafjarðará |
7.júlí 2008 |
Fyrstu 3 dagana í júlí var frekar rólegt í Hrútu, end mikið rok til að byrja með en greinilegt var á þriðja degi að lax var að koma inn. Sett var þá í þrjá laxa sem allir fóru af. Þann 4. júlí að morgni hófum við nokkrir starfsmenn Strengja veiðar og náði ég strax fyrsta laxinum í Háeyrarhyl og missti annan. Samtals náðust 4 laxar þann dag og reytingur af vænni bleikju niður í Dumbafljóti. Sáust laxagöngur líka fara þar í gegn svo vel lítur út með framhaldið. Helst er áhyggjuefni að vatn minnkar með hverjum degi og stefnir í óefni fljótlega ef ekki fer að rigna.
|
 |
Halldór Óli setti líka í stærsta laxinn, ca. 11-12 punda hrygnu úr Hamarshyl. Náðist viðureignin að hluta til á myndband sem má sjá hér. |
|
 |
Fyrsti laxinn úr Hrútafjarðará, 10 punda lúsug hrygna sem var sleppt aftur í ánna. Nú er skylda að sleppa vænum hrygnum aftur í ánna. |
|
 |
Góðar endurbætur hafa verið gerðar á veiðihúsinu í Hrútu, komin stór verönd með potti meðal annars og fullklárað vöðlu-og þurrkherbergi.
Einnig eru alltaf uppábúinn rúm innifalinn í veiðileyfinu. |
|
 |
Bleikja úr "Dumba" og veiðimaður er Halldór Óli Halldórsson. Allt að 4 punda bleikjur veiddust þennan dag 4. júlí. |
|
|

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.
Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is
|