Þrátt fyrir verðbólgu og stóraukinn kostnað hefur Veiðiþjónustan Strengir tekið þá stefnu að halda óbreyttum verðum á veiðileyfum og þjónustu fyrir árið 2009 líkt og var sumarið 2008. Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu bíður markaðurinn ekki upp á neinar hækkanir enda hafa Strengir ætíð verið hófsamir í verðhækkunum miðað við aðra veiðileyfasala. Aðeins örfáir dagar á okkar svæðum hafa farið til banka og annarra stórfyrirtækja undanfarinn ár, þannig að kaupendahópurinn hefur lítið breyst á milli ára, og Strengir hafa ekki tekið þátt í að sprengja upp verð á veiðileyfum í baráttu um bestu árnar.
Meiri áheyrsla hefur verið lögð í að bæta aðstöðuna sem leitt hafa til hækkunar enda eru veiðihús strengja í sérklassa miðað við flest önnur veiðihús landsins. T.d. var sl. sumar í öllum veiðihúsum okkar innifalinn uppábúinn rúm og handklæði og var hófleg hækkun því samfara. Verður það óbreytt fyrirkomulag fyrir 2009.
|
 |
Komið að löndun í Jöklu 9. ágúst 2008 við veiðistaðinn Skipalá. Laxinn tók Sunray Shadow hitch túpu!
|
|