Góð byrjun í rjúpnaveiði 1-2 nóvember

7.nóvember 2008

Þrátt fyrir erfiðar aðstæður, hlýtt veður og úrkomu byrjaði rjúpnaveiðin á okkar svæðum vel fyrir austan helgina 1-2 nóvember.

Í Breiðdal voru 5 manns að veiðum frá Veiðihúsinu Eyjar, og einnig heimamenn seinni daginn. Samtals fengust þar 84 rjúpur svo flestir voru komnir með skammtinn sinn eftir þessa helgi þar, en þó var veiðinni misskipt milli manna eins og oft vill verða.

Í Jökulsárhlíð, Jökuldal og Jökuldalsheiði frá Veiðihúsinu Hálsakoti voru einungis 3-4 menn að veiðum og má sjá tvo þeirra hér á mynd með aflann, 46 rjúpur. Stór hluti þeirra fékkst á svæðinu rétt við veiðihúsið, svo ekki var langt að fara. Reyndar var veiðin ekki stunduð af krafti heldur, eða aðeins
3-4 tíma á dag og höfðu veiðimenn á orði að þetta væri eins og að veiða í "Home Pool" rétt við húsið.

Rjúpnaveiði


Þessa helgina eru aðstæður mjög slæmar, mikil þoka yfir flestum svæðum og hlýindi vikunnar hafa tekið upp megnið af snjónum. Má búast við að veiði verðir erfið þess vegna, en síðan á að kólna og spáin fyrir næstu daga eftir helgina er norðanátt og þar með ætti að rofa til í veiðinni aftur.

Mikið bókað, en þó laust í Breiðdalnum 13-16 nóvember og í lokinn 27-30 nóvember. Á Jöklusvæðum er laust einnig í lokahollinu 27-30 nóvember.


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is


Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is