Lokatölur eru að koma í hús og almennt má segja að laxveiðin sé á svipuðum nótum á okkar svæðum þetta árið og sumarið 2007 í fjölda laxa. Hrútafjarðará endaði í 402 löxum á móti 431 í fyrra, Breiðdalsá í 910 löxum á móti 873 í fyrra og vantaði lítið upp á nýtt met þar sem voru 937 laxar árið 2006. Nýja Jöklusvæðið gaf nú 184 laxa á móti 120 tilraunasumarið 2007, en þar vantaði síðsumarsgöngur eins og víða norðaustanlands þetta sumarið. Laxá í Nesjum átti enn eitt gott sumar með sínar tvær stangir eða 162 laxa, sem er aðeins færri en í fyrra. Fyrstu dagana í október var stunduð klakveiði með stöng og net í öllum þessum ám með góðum árangri og náðist meiri klaklax en nokkurn tímann áður, svo framtíðin er sannarlega björt með öflugri fiskrækt í þessum ám. Meiri sjóbleikjuveiði var þetta árið og virðist hún vera á uppleið aftur. Urriðaveiðin er svipuð og í fyrra í öllum þessum ám, einnig Minnivallalækur með um 300 fiska og var fiskurinn almennt þar vænni en áður. Farið verður nánar yfir veiðina í hverri veiðiá síðar.
Rjúpnaveiði verður leyfð aftur í 18 daga í nóvember og við bjóðum upp á mjög góð rjúpnasvæði í tengslum við Veiðihúsið Hálsakot í Jökulsárhlíð og Veiðihúsið Eyjar í Breiðdal. Mjög mikið virðist vera af rjúpu á austurlandi að sögn kunnugra og má búast við góðri veiði svo framarlega að vel viðri til veiða. Mikið er bókað á okkar svæðum en þó eru einhver tímabil ennþá laus. Spyrjið um nánari upplýsingar.
|
 |
| Bjarki Þ. Atlason með 8 kg hrygnu úr Gljúfrahyl lokadaginn 30. September. Ein af fjölmörgu vænum hrygnum úr Breiðdalsá sem fór í klakkistu. |
|