Laus veiðileyfi komin á vefinn

12.janúar 2008

Á vef okkar www.strengir.is var nýlega sett inn staða lausra leyfa í ám okkar. Eftirspurn er mismikil eftir veiðisvæðum og ef kíkt er betur á stöðuna þá er hún eftirfarandi:

Hrútafjarðará: Flest holl vilja halda sínum stöngum þar og áin er uppseld. Þó verða alltaf einhverjar afbókanir er kemur að gjalddögum. Áhugasamir fara á biðlista og aldrei að vita nema  hægt verði að koma einhverjum að.
Hrútafjarðará
Ánægður veiðimaður



Breiðdalsá: Fyrstu þrjú hollin eftir opnun eða frá 2-11 júlí eru laus sem stendur, en fullbókað eftir það.  Nokkrar stangir eiga enn eftir að staðfesta svo hugsanlega gæti losnað um eitthvað síðar um sumarið og áhugasamir eru settir á biðlista.
Silungasvæði: Mikið er laust ennþá á silungasvæði Breiðdalsár frá 1 maí en helgar eru að byrja að bókast. Óbreytt verð frá 2007 og einnig er góð laxveiðivon á silungasvæðinu er líður á sumarið.

Breiðdalsá
Stórlax úr Breiðdalsá, og þessi kom af silungasvæðinu!



Jökla I og Fögruhlíðará: Þetta svæði sló svo sannarlega í gegn sl sumar og strax er eftirspurn ágæt fyrir 2008.  Víðfemt svæði með 6 stangir á neðsta hluta Jöklu ásamt hliðaránum Laxá, Fossá, Kaldá og nálægri Fögruhlíðará. Búist er við góðri laxveiði á laxveiðitímanum frá seinnihluta júlí og til loka september. Mikið er bókað þegar í ágúst en nokkuð laust á öðrum tímum. Miðað við stórauknar seiðasleppingar má búast við miklu af svæðinu 2008.
Í júní og fyrri hluta júlí er góð sjóbleikjuveiði, fyrst í Fögruhlíðará en síðar einnig í Kaldá, og vænni bleikjur voru að veiðast 2007 en ég bjóst við. Töluvert er laust ennþá á þessum tíma. Gisting er alltaf innifalin í verðinu frá 1 júní til 30 september.Hún er í nýja glæsilega veiðihúsinu við Kaldá og uppábúinn rúm verða þar einnig alltaf innifalin.
Jökla II: Þetta er efri hluti Jöklu ofan þjóðvegs ásamt hliðarám þar. Tilraunasvæði með sex stangir á hóflegu verði þar sem vænta má að veiðist fyrstu laxar úr seiðasleppingum og vitað er að einhver silungur er einnig á svæðinu. Mikið laust.
Jökla og Fögruhlíðará

Langisveigur í Kaldá




Laxá í Nesjum: Þessi litla tveggja stanga á við Hornafjörð varð stútfull af laxi er loks rigndi sl sumar og má eiga von á því að hún verði vel bókuð fyrir sumarið er líður á veturinn. Enn er töluvert laust en fyrirspurnir farnar að berast.  
Laxá í Nesjum
Rennt í Glúfurshyl í Laxá



Minnivallalækur: Þessi á er sívinsæl og vorið bókast venjulega fyrst upp. Flestar helgar í vor eru þegar bókaðar en þó má finna laus holl á öllum tímum ennþá.
Minnivallalækur

Gleðin leynir sér ekki við Minnivallalæk!



Sala veiðileyfa

Sala veiðileyfa er á skrifstofu okkar að Smárarima 30 í Grafarvogi.
Sími og fax er 567 5204 gsm 660 6890
Pósthólf númer 12024, 132 Reykjavík.
Greiðslukortaþjónusta Visa-Eurocard.
Kort af veiðisvæðum fást á skrifstofunni.

Góða skemmtun veiðisumarið 2008!

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is


Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is