Fljótlega setti hann í fisk og fyrr en hann vissi af var fiskurinn kominn í flúðirnar fyrir ofan Stöðvarhylinn og undirlínan að rjúka út. Þórir rauk á eftir honum og þá rauk fiskurinn aftur niður úr, svona gekk þetta þar sem hann strikaði upp og niður og Þórir gat lítið gert nema fylgjast með. Að lokum náði hann að skófla fiskinum á land, mæla hann og smella einni mynd á farsímann sinn. Hann mældist 68 cm, en var mikill bolti og við bárum hann saman við myndir af fiskinum sem Þröstur veiddi 2006 og þurfti að farga en sá vigtaði 4,5 kg og leit þessi út fyrir að vera stærri. Fiskurinn var aftur tekinn á frumhnýtta flugu af Þóri sem hann hann nefndi "Tveir í Brúðkaupi" til heiðurs okkur tveimur sem þurftum að hverfa á braut. Aðrir fiskar sem komu á land voru þrír, 60 cm úr Drátthólshyljum og svo man ég ekki stærðirnar á þeim tveimur sem Brynjar tók, en þeir voru teknir í Viðarhólma og Hólmakvíslum, báðir á Black Ghost Zonker. Einnig er kannski vert að minnast á það að rétt áður en Þórir setti í seinni drekann sleit annar fiskur 13 punda taum hjá honum. Ég sjálfur missti svo fisk sem við ætluðum 8-9 pund alveg upp í landi eftir að hann hafði náð að flækja línunni um slýbunka og líklega særa tauminn. Makkerinn var kominn með hendur á hann en missti hann og svo sleit hann, hefðum við verið með háf hefðum við náð honum.
Sem sagt frábær ferð í alla staði fyrir utan það að þurfa að fara fyrr heim og þessa bölvuðu norð-austan átt allan laugardaginn sem gerði það að verkum að það var gjörsamlega ómögulegt að upstreama og svo var rosalega kalt fyrir vikið.“
Í Breiðdalsá hefur verið mikið vatn og lítið bókað frá opnun 1. maí en þó fengust nokkrar bleikjur á eina stöng sem var við veiðar fyrir helgi. Loks um helgina var vatn alveg sjatnað og Súddi staðarleiðsögumaður ákvað að skella sér niður við Brú í dag og kanna hvað væri þar undir. Og hann var í geðshræringu er hann sló á þráðinn til mín síðdegis eftir 2 klst veiði. Þá hafði hann fengið 11 sjóbleikjur á ýmsar flugur og misst margar aðrar, og voru þær bæði vænar og í góðum holdum, allt að 4-5 punda þær stærstu! Og hann missti nokkrar „breddur“ sem tóku strikið niður í sjó undir brúna og fóru út með alla línuna áður en hann gat fylgt þeim eftir eða stöðvað þær, ýmist slitu eða rifu sig lausar þegar hann lét „sverfa til stáls“ og reyndi að stoppa rokurnar áður en öll línan væri farin út! Frábær byrjun og sérstaklega þegar haft er í huga að nú er smástreymt og þetta fjör var um miðjan dag, yfirleitt er best snemma á morgnanna eða á kvöldin í bleikjunni.
 |
Frá Brú á silungasvæðinu þar sem Sigurður Staples (Súddi) lenti í ævintýri í dag. Þessi mynd var reyndar tekin fyrir nokkrum árum og má sjá svipaða veiði og fékkst þar í dag hjá honum einum. |
Lítið er bókað á næstu dögum og mun Súddi eflaust reyna aftur næstu daga þegar hann hefur tíma til, en nú eru „vorverk“ okkar hafin af fullum krafti, sem eru flutningur gönguseiða í sleppitjarnir í okkar laxveiðiár. Lítur vel út með seiðin og nú þegar er töluverður fjöld þeirra komin tjarnir í Breiðdalsá og stefnt er að því að klára að setja í aðrar ár í byrjun júní.
|