Flóð fyrir austan

13.september 2008

Það var stórrigning í Breiðdal í vikunni og Súddi leiðsögumaður man ekki eftir öðru eins flóð í ánni í nokkur mörg ár, enda hefur áin sjálf verið óveiðandi síðan. Þó reytist upp einn og einn lax í hliðarám sem að öllu jöfnu eru sprænur og lax gengur ekki upp í. Fyrir flóð var góður gangur og um 20 laxar á dag ekki óalgeng tala. Besti dagurinn gaf reyndar 42 laxa í lok ágúst er áin var að jafna sig eftir lítið flóð og allt agn var þá leyfilegt líka. Hefur verið blönduð veiði af bæði  stórlaxi og smálaxi og þar á meðal var einn lax núna í vikunni um 20 pund vigtaður og settur í klakkistu.  Búast má við góðu skoti er áin hreinsar sig á næstu dögum.

Jöklusvæðið hefur gefið reytingsveiði í hliðaránum í Jökulsárhlíð, en sárlega vantað þó rigningu og árnar voru orðnar vatnslitlar er loks rigndi í gær. Þá um morguninn settu veiðimenn í 8 laxa í Kaldá en misstu þá flesta svo greinilegt var að aðstæður voru allar að koma til. Komu síðan 5 laxar á land í gær og er þá  svæðið komið með um 160 laxa á land. Stefnir í ágæt sumar en veiði líkur í lok september.

 

Kaldá á Jöklusvæðinu

Vænn lax úr Kaldá á Jöklusvæðinu, þessi fór í klakkistu.

Laxá í Nesjum hefur verið að gera það gott í góðu vatni undanfarnar vikur, nema þá síðustu daga er rigningarnar hafa valdið miklu flóði eins og í Breiðdal. En áin er fljót að jafna sig og má búast við góðri veiði þá. Annar stórlax veiddist nýlega í Laxá sem var rúm 20 pund, og hann var einnig örmerktur úr seiðasleppingu 2006, sem sýnir hvað lax getur vaxið mikið á tveim árum í sjó!


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is


Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is