Það styttist í rjúpnaveiðitímabilið sem hefst 1. nóvember næstkomandi. Við höfum nokkur af bestu rjúpnasvæðunum á austurlandi á okkar snærum, enda hefur sá landshluti verið að koma einna best út hjá rjúpnastofninum samkvæmt rannsóknum og veiði sl. ár. Um er að ræða nokkur svæði í tengslum við gistingu í tveim veiðihúsum okkar fyrir austan, Veiðihúsið Hálsakot og Veiðihúsið Eyjar.
Veiðihúsið Hálsakot er staðsett við Kaldá í Jökulsárhlíð í landi Sleðbrjóts.
Þar er mikið af rjúpu í kjarrvaxinni hæð fyrir aftan veiðihúsið og þarf þar ekki langt að fara. Einnig erum við með Skriðufell utar í hlíðinni og Hrólfsstaði ofar í Jökuldalnum sjálfum. Ofar í Jökuldalnum og Jökuldalsheiði eru rjúpnasvæðin við Ármótasel og Arnórsstaðir einnig á okkar vegum. Því er gríðarlega rúmt um veiðimenn, en almennt er miðað við að 6 byssur séu notaðar samtals á þessi svæði, en hópar sem kaupa allar byssurnar geta haft þann fjölda sveigjanlegan. Veiðivörður og umsjónarmaður Guðmundur Ólason sýnir veiðimönnum svæðin og svæðamörk við komu og gefur aðrar þær upplýsingar sem þeir kunna að þarfnast. Rjúpnaveiði á dag kostar kr. 12.000 sem er óbreytt verð frá 2007.
|
 |
| Frá Veiðihúsinu Hálsakot, en gott rjúpnasvæði er í kjarrinu rétt við húsin! |
|
Er innifalið fyrsta flokks uppábúinn gisting í Hálsakoti þar sem hvert herbergi er með baði. Glæsileg stofa með arinn og sjónvarpi og góð eldunaraðstaða er einnig í veiðihúsinu. Geta allt að 12 manns gist í Hálsakoti ef þess er óskað. Hægt er að fá fullt fæði ef hópar vilja eftir nánari samkomulagi. Eigum laust þarna í hollunum 6-9
nóvember,20-23 og 27-30 nóvember.Aðeins er um 25 min akstur frá Egilsstaðaflugvelli til Hálsakots.
Veiðihúsið Eyjar er staðsett í Breiðdal sunnanmegin í dalnum í landi Eyja.
Þar er ágætt rjúpnasvæði ásamt jörðinni Lágafell sem er jörð utan við Eyjar og stendur einnig til boða okkar veiðimönnum. En norðanmegin í dalnum eru Heydalir og svonefnt Heydalafjall eflaust þekktasta og besta rjúpnasvæði strengja. Gríðarlega stórt og mikið svæði sem er eitt þekktasta rjúpnasvæði austurlands. Við hlið þess austanvert tekur við land Fells sem við höfum einnig aðgang að. Að lokum höfum við einnig rjúpnaveiðina innst í Stöðvarfirði sem er næsti fjörður norðan við Breiðdalsvík á jörðinni Stöð.
Almennt er boðið upp á 8-12 byssur á öllum þessum svæðum og staðarhaldari og veiðivörðurinn Súddi fer yfir skipulag veiðanna, svæðin og svæðamörk við upphaf veiða. Rjúpnaveiði á dag kostar kr. 12.000 sem er einnig óbreytt verð frá 2007. Er innifalið ein besta gisting sem völ er á í Eyjum þar sem hvert herbergi er með baði, sjónvarpi og internettengingu. Glæsileg stofa með arinn og heitur pottur og gufa eru í húsinu. Góð eldunaraðstaða er einnig í veiðihúsinu og geta allt að 16 manns gist í átta tveggja manna herbergjum.
Hægt er að fá fullt fæði ef hópar vilja eftir nánari samkomulagi. Eigum laust þarna í hollunum 13-16 nóvember og 27-30 nóvember. Um klst akstur er frá Egilsstaðaflugvelli til Breiðdals.
 |
| Veiðihúsið Eyjar á jörðinni Eyjar í Breiðdal. Í fjöllunum í bakgrunni ganga in þverdalir sem þykja gott rjúpnaland. |
|