Um 30 laxar hafa veiðst í Hrútafjarðará sem er bara gott miðað við það litla vatn sem hefur veriði í ánni undanfarið. Töluverður lax er komin í ánna og ef rignir verður veisla. Meira virðist líka vera af bleikju í Dumbafljóti en áður og hugsanlega er hún að koma til eftir niðursveiflu í nokkur ár.
Jöklusvæðið er komið á blað í laxveiðinni og hafa 3 laxar veiðst þar undanfarna daga. Lítið hefur þó verið reynt en Guðmundir Ólason veiðivörður fékk þann fyrsta í Laxá í jökulsárhlíð í fossinum og síðan hafa tveir aðrir veiðst í þeirri á. Einnig hefur verið sett í nokkra laxa í Kaldá og í Jöklu sjálfri sem er núna blátær en ekki náðst á land. Er þetta óvenjusnemmt, t.d. komu fyrstu laxarnir úr Laxá í fyrra í byrjun september! Nokkrir sjóbirtingar hafa líka veiðst þar. Sjóbleikjuveiðin i Fögruhlíðarós hefur verið frekar döpur það sem af er sumri, en Kaldárbleikjan væna er farin að láta sjá sig. T.d. fengust 8 bleikjur í fyrradag við ósa Kaldár og Jöklu allt að 4-5 pund og allar á flugu.
Fyrsti laxinn veiddist í Laxá í Nesjum snemma í júlí og var það 15 punda hængur úr Ármótahyl á Sunray Shadow fluguna. Bændur hafa haft ánna það sem af er júlí en lítið hefur verið reynt. Nú verður veitt reglulega og þá koma fljótlega nánari fréttir af gangi mála.
Frábær gangur hefur verið hjá nokkrum útlendingahollum á góðviðrisdögum í júlí í Minnivallalæk. Eitt hollið var með um 60 fiska á litlar þurrflugur og púpur og allt að 11 punda urriði stærst! Black Gnat hefur gefið sérstaklega vel þessa dagana. Er urriðinn óvenju vænn þetta sumarið og mikið af 45-60 cm fiski sem er þá 4-7 pund.
Ennþá eru nokkur laus leyfi í flestum ám okkar nema í Hrútafjarðará sem er uppseld.
 |
Vænn urriði úr Minnivallalæk núna í júlí. |
|
 |
Fyrsti laxinn af Jöklusvæðinu, Guðmundur með hann og í baksýn má sjá hluta af veiðihúsum sem þar eru í byggingu. |
|
|