Stórlaxaævintýrið heldur áfram í Breiðdalsá, í morgun veiddust tveir laxar þar í 20 punda klassanum. Annar var glæsilegur hængur úr Bryggjustreng í Tinnudalsá. Tók hann maðk en hægt var að losa um öngulinn og sleppa fiskinum eftir viðureignina. Fyrst var hann mældur og veginn, 98 cm og 10,5 kg. Veiðimaður eða réttara sagt veiðikona var Hrund Helgadóttir. Á sama tíma fékk Bragi Kristinsson feikilega fallega nýrunna hrygnu úr Gljúfrinu á fluguna Black and Blue ½ keilu. Hefur hann margan stórlaxinn séð í veiði með tengdaföður sínum Pétri Brynjólfssyni Fnjóskárjarli og fyrrum framkvæmdastjóra Hólalax, en aldrei séð þvílíkan sverleika á nokkrum fiski. Mældist hún 93 cm að lengd en miðað við þykkt alveg örugglega 20 pund staðhæfðu þeir sem sáu hrygnuna áður en henni var sleppt aftur. Var hún því bókuð 20 pund.
Myndir voru teknar af báðum þessum löxum sem verða birtar fljótlega. Fleirri stórlaxar veiddust allt að 89 cm langir svo meðalþyngdin á þeim 9 löxum sem veiddust í dag hefur verið mjög góð.
Hinn knái sjónvarpsmaður Þorsteinn J. var nýlega að veiðum í Breiðdalnum og tók hann kvikmyndavél með sér til gamans. Við Ármótin rakst hann á Heydalaklerk séra Gunnlaug Stéfánsson og formann Veiðifélags Breiðdæla, sem hefur lent í nokkrum stórfiskaævintýrum á bökkum Breiðdalsár í sumar. Auðvitað var klerkur með lax á þegar Þorstein bar að og með aðstoð „Súdda“ staðarhaldara var þessum stórlaxi landað og sleppt aftur í ánna eins og svo mörgum öðrum í sumar. Sjá má viðureignina hér á vefnum.
Nánari fréttir hafa borist af Laxá í Nesjum. Fyrir 20. júlí var búið að veiða þrátt fyrir litla ástundun 20 laxa sem er frábært svo snemma sumars. Lofar það góðu með framhaldið. Á sama tíma í fyrra var komin 1 lax en samt endaði áin í 182 löxum sem er fín veiði á tvær stangir.
Síðasta holl í Hrútafjarðará var með 17 laxa á tveim dögum, mest í gær er fór að rigna loks á svæðinu. Er áin komin í um 60 laxa og stefnir í frábært sumar þar líkt og víða annarsstaðar. |