Veiðitölur frá Laxá í Nesjum |
23.mars 2008 |
Veiðin í Laxá í Nesjum hefur verið misgjöful milli ára. Á síðustu sex árum hefur áin gefið frá 88 til 204 laxa á tvær stangir. Síðasta ár var það næst besta þegar 182 laxar veiddust. Meðalveiði síðustu sex ára eru 135 laxar. Verð veiðileyfa er stillt í hóf eða á bilinu 9.900 kr. til 28.900 kr. stangardagurinn og innifalið uppábúinn gisting í veiðihúsi. Nokkur holl eru laus í lok júlí, einnig á bilinu 4-12 ágúst og þrjú holl eru ennþá laus í september 2008.
 |
Veiðimenn sjá um sig sjálfir í fínu húsi í Nesjahverfi. Um 4 km eru til Hafnar í Hornafirði þar sem fjölbreytt þjónusta er í boði. |
|
|

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.
Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is
|