Veiðifréttir og laus veiðileyfi

25. maí 2008

Reytingsveiði hefur verið í Minnivallalæk, reyndar ívið færri fiskar veiðst en á sama tíma og 2007, en á móti er fjöldi stórfiska mun meiri. Nú fer í hönd sá tími þar sem þurrflugan virkar einna best og eru það engar smáviðureignir ef menn ná að setja í einhvern af „höfðingjum“ árinnar á þann hátt. Áin er ágætlega bókuð en þó eru ennþá lausir dagar t.d. í júní eins og sjá má á nýuppfærðri stöðu lausra leyfa. Vil ég sérstaklega vekja athygli á að helgi er laus 13-15 júní, en það heyrir til undantekninga  að helgi sé laus í júní með þessum fyrirvara.

Sjóbleikjan er dyntótt í Breiðdalsá, reyndar verið lítið bókað ennþá og Súddi fékk annað „skot“ einn morguninn fyrir viku er 9 bleikjur fengust, þar af 6 á Neðri-Grjóttanga. Nú er meiri ásókn framundan og þá kemur meiri reynsla á silungsveiðina. Þó er nokkuð laust næstu vikur en seinnihluti júní er að mestu fullbókaður.

Þann 1. júní hefst svo sjóbleikjuveiði í Fögruhlíðarós og nú má líka einnig veiða í ósum í Jöklu þar skammt frá þar sem hún er tær og sameinast þar Lagarfljóti. Ætti sjóbleikja ekki síður að vera þar eins og í Fögruhlíðarós, sem er velþekktur og gaf vel í júní 2007 þrátt fyrir litla ástundun þá. Reyndar er töluvert laust í júní og fyrrihluta júlí og hægt að fá veiðileyfi með eða án gistingar í Veiðihúsinu Hálsakoti við Kaldá.

Minnivallalækur

Stórurriði úr Minnivallalæk í maí, en óvenju margir mjög vænir fiskar hafa veiðst þar í vor.

Laxveiðin hefst svo formlega 1. júlí í Breiðdalsá, Hrútafjarðará og Laxá í Nesjum, en síðar eða um 20. júlí á Jöklu I og Fögruhlíðará (ásamt öðrum þverám í Jökulsárhlíð, Kaldá, Fossá og Laxá).

Mikið er bókað í Breiðdalsá, í júlí eru þó lausar 2 stangir 5-8, 17-20 og 23-26 júlí. Einnig 1 stöng í september í tveimur hollum, 11-14 og 14-17 september, og að lokum nokkrar stangir í lokahollinu 26-29 september. Hrútafjarðará er uppseld, og í Laxá í Nesjum eru tvo holl laus, 29 júlí – 1 ágúst og 4-6 ágúst. Í Jöklu I og Fögruhlíðará er ágætlega bókað en nokkur holl eru laus hér og þar.  

Minnivallalækur Minnivallalækur
Sjóbleikjur af ósasvæði Breiðdalsár veiddar um miðjan maí.

Frá ósasvæði Fögruhlíðárár en veiði hefst þar fljótlega. Í fjarska sést til árósa Jöklu og Lagarfljóts, en nú er Jökla tær og því er hægt að veiða einnig við árósa hennar. Stutt er að keyra sandinn á milli Fögruhlíðará og Jöklu og þar með opnast nýr spennandi veiðimöguleiki í sjóbleikjuveiðinni.


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is


 
Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is