Gifting á bökkum Breiðdalsár!

25.september 2008

Það er ekki á hverjum degi sem að gifting fer fram á bökkum veiðiár en laugardaginn 13. september, kl. 12 á hádegi, voru gefin saman við Prestastreng í Tinnudalsá Ólöf Anna Jónsdóttir og Guðjón Þór Pétursson. Prestur var Séra Gunnlaugur Stefánsson frá Heydalaprestakalli. Svaramenn voru Herleifur Halldórsson og Nanna Snorradóttir. Söfnuður Birgir Reynisson og Ragnhildur Bjarnadóttir.
Til hamingju Ólöf og Guðjón!

Annars fer að styttast í lok vertíðar en veitt verður til 30. september í öllum okkar ám. Ljóst er að veiði var almennt góð þó stundum hafi verið sveiflur vegna þurrka eða eins og nýverið einnig vegna flóða sem sett hafa einhver strik í reikninginn.

 

 

Gifting



Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is


Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is