Það hefur verið ágæt veiði á silungasvæðum okkar undanfarið. Leiðsögumaður sem var nýverið með tvo erlenda veiðimenn í Minnivallalæk sagðist aldrei hafa séð jafnmikið líf í læknum og þann dag, fiskur að vaka um allt og það engir smáfiskar. Þeir náðu á land einungis 4 urriðum, en þeir voru á bilinu 4-8 pund og höfðu veiðimennirnir aldrei séð svona stóra urriða áður, en höfðu þó víða farið í silungsveiði.
Fögruhlíðarós hefur verið lítið stundaður og dýntótt veiði þegar reynt hefur verið, þar til undanfarna daga að leiðsögumennirnir Stjáni Ben og Súddi ásamt erlendum veiðimönnum komu þar við. Voru þeir að hitta á góð skot og sjóbleikjur allt 3 pund, en smátt inn á milli. Einnig hafa fengist sjóbleikjur á mikilli breiðu í Jöklu skammt ofan ósa Laxár í Jökulsárhlíð. Þar rennur lækur sem heitir Blanda í Jöklu og hefur breiðan verið skírð Blöndubreiða.
Erlendir veiðimenn töldu sig líka hafa séð vænan lax stökkva þar um daginn og ef rétt reynist lofar það góðu.
Hollið sem var að fara í gær úr silungasvæði Breiðdalsár hitti vel á það, bæði sjóbleikjur og urriða. Stærsta bleikjan í hollinu var 4 pund og veiddist niður við Brú í gær.
Laxveiðin hefst formlega í okkar ám 1. júlí næstkomandi. Miðað við þá góðu byrjun sem verið hefur í flestum ám er engin ástæða til annars en að vera bjartsýnn á sumarið sem er að fara í hönd. Eru árnar okkar vel bókaðar, en eins og sjá má á nýuppfærðri stöðu lausra leyfa hafa nokkrar mjög áhugaverðar stangir komið nú í endursölu. Helst er að nefna þar stangir í byrjun og lok águst í Breiðdalsá sem ekki hafa verið lausar undanfarin ár. Frábær tími og fyrstur kemur fyrstur fær! Einnig vil ég nefna að Minnivallalækur er undarlegt nokk laus fyrstu þrjár helgarnar í júlí á meðan flestir virku dagarnir á milli eru bókaðir!
|