Ennþá gott úrval veiðileyfa í boði

29.febrúar 2008

Þrátt fyrir góðar bókanir hjá mér er ennþá gott úrval veiðileyfa til sölu eins og sjá má á vefnum www.strengir.is sem hefur nýverið verið uppfærður með laus leyfi. Reyndar er líklegt að bætist inn fljótlega örfáar stangir  bæði  í Hrútafjarðará og í Breiðdalsá á góðum tíma því eins og gengur og gerist verða alltaf einhver afföll þegar þrýst er á með staðfestingargreiðslur.  Það skýrist betur á næstu dögum, en áhugasamir ættu að hafa samband sem fyrst til að setja sig á biðlista til að tryggja sig einhverjar stangir ef þær losna í næstu viku.
Og það styttist í glæsilega söluskrá Strengja sem fer í prentun eftir helgi en þar eru veiðiár okkar gerð góð skil og margar glæsilegar myndir  fylgja með.  Þeir sem óska eftir að fá söluskrána ættu að senda mér heimilisfang sitt og einnig þeir sem hafa fengið hana árlega, en eru með breytt heimilisfang ættu að senda mér línu.

Hrútafjarðará

Jónas Halldórsson leiðsögumaður landar einum við Skjöldólfsstaðanes í Breiðdalsá. 

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is


Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is