Í gær veiddist stórlax í Laxá í Nesjum sem vog 11 kg, 102 cm og ummál var 47 cm! Var það hængur úr Ármótahyl sem er neðsti veiðistaður Laxár og var laxinum sleppt aftur í ánna. Veiðimaður var Guðjón Pétur Jónsson og tók dóttir hans mynd af fiskinum sem er hér meðfylgjandi. Laxinn tók þýska Snældu og var það hörkuviðureign að sögn Guðjóns. Talsvert er af laxi í Laxá og þar á meðal hefur sést til annars risa sem talinn er jafnvel enn stærri! Sleppt hefur verið seiðum af Breiðdalsárstofni sl. ár í Laxá og því ekki að undra að þeir stóru eru að veiðast þar líka. |
 |
Guðjón með laxinn rétt áður en honum var sleppt.
|
|