Veiðisumarið 2008 verður mörgum veiðimanninum ógleymanlegt enda met laxveiði víða. Gleðilegt að stórlaxinn virtist einnig vera að koma í meira mæli almennt aftur eftir að hafa verið í stöðugri niðursveiflu undanfarin ár, en með þeirri undantekningu að okkar laxveiðiár hafa verið þar með ávallt gott hlutfall stórlaxa og var engin breyting þar á sumarið 2008. Reyndar er óhætt að segja að stórlaxaveiði í okkar ám hafi farið fram úr björtustu vonum sl. sumar, t.d. gaf Breiðdalsá 9 laxa 10-12 kg! Laxá í Nesjum gaf 11 og 10.5 kg laxa, þar af var annar örmerktur úr gönguseiðasleppingu okkar og fer ekki á milli mála að stórlaxastefna Strengja er að skila frábærum árangri í stærð laxa sem veiðast í okkar ám.
En silungsveiðin var líka minnisstæð og almennt jókst silungsveiðin í okkar ám. Minnistæðast eru þó hinir stóru urriðar sem veiddust í Minnivallalæk, en 6 fiskar þar voru áætlaðir á bilinu 5-7.5kg! Þar af fékkst einn þeirra á þurrflugu númer 18 og verður þeim veiðimanni ógleymanleg viðureignin. Óhætt er að segja að engin veiðiá hér landi bíður upp á eins mikla stórurriðaveiði og Minnivallalækur. Einnig má geta að óvæntur fengur fékkst í Breiðdalsá 4. júlí er 7.5 kg þungur urriði fékkst úr ánni sem er langstærsti silungur sem veiðst hefur þar um slóðir.
Stöðugt kemur hið nýja vatnasvæðið við Jöklu og Fögruhlíðará á óvart og sérstaklega þegar Jökla sjálf er veiðanleg og rennur blátær til sjávar eins og hver önnur dragá. Jafnvel var hægt að veiða lax þar á nettar græjur og litlar flugur, og jafnvel „hitcha“ sem einhverntíman hefði þótt óhugsandi í Jöklu. Nú verður eingöngu leyft að veiða á flugu á svæðinu Jökla I og Fögruhlíðará á tímabilinu frá síðla júlí og fyrstu þrjár vikur ágústmánaðar 2009. En vatnasvæðið er líka svo miklu meira en bara Jökla, en nokkrar þverár sem í hana renna eru ávallt veiðanlegar þó að Jökla fari í yfirfall svo sem Laxá, Fossá og Kaldá, að ógleymdri Fögruhlíðará sem rennur beint til sjávar skammt frá ós Jöklu. Nýja Veiðihúsið Hálsakot sló í gegn í sumar og aðstaðan þar er nú fyrsta flokks bæði fyrir lax og silungsveiðimenn allan veiðitímann frá 1. júní til 30. september.
Sama má segja um Hrútafjarðará en þar voru endanlega kláraðar þær endurbætur sem gera þurfti á veiðihúsinu þar. Verönd með heitum potti og nýtt þurrk-og vöðluherbergi var klárt fyrir sumarið 2008 og gestir eru gríðarlega ánægðir með húsið eins og það er í dag. Áin gaf rúma 400 laxa og nokkuð af bleikju sem er frábær veiði á 3 stangir.
Það verður óbreytt verð á veiðileyfum árið 2009 í öllum okkar ám frá því sem var 2008. Og reyndar í fyrri hluta júlí í Breiðdalsá er verðið enn óbreytt síðan 2007! Og það þrátt fyrir stóraukna veiði á því tímabili 2008 og eina mestu stórlaxaveiði hér á landi í mörg ár hafi þá verið í ánni er 8-10 kg laxar veiddust nánast daglega!
Líkt og áður verða öll okkar veiðihús með uppábúinn rúm og handklæði innifalin í veiðileyfum og virðast margir ekki hafa áttað sig á þeirri þjónustu síðasta sumar. Erum við eini veiðileyfasalinn á landinu sem bjóða upp á þennan kost í öllum okkar ám og það án þess að það komi til hækkunar á verði veiðileyfa í sumar. Veiðimenn þurfa samt að ganga vel frá veiðihúsi á brottfarardegi og þrif eru ekki innifalinn, virðist stundum hafa orðið misskilningur þar á er starfsfólk kemur á skiptidegi til að gera klár rúmföt á milli holla. Einnig er þörf á því að ljúka veiði kl. 12:00 á brottfarardegi í öllum ám og brottför skal vera á milli kl. 13-14:00. Komudag er mæting kl.14-15:00 nauðsynleg í öllum okkar veiðhúsum og vænti ég að veiðimenn hafi skilning á því.
Veiðiþjónustan Strengir ehf hefur verið starfrækt síðan 1988 og því eru rúm 20 ár síðan ævintýrið byrjaði. Hefur það verið eingöngu fjölskyldufyrirtæki mitt alla tíð og rekið með litla yfirbyggingu þar sem lögð er áheyrsla á persónulega og heiðarlega þjónustu við viðskiptavini. Þrátt fyrir erfitt efnahagsástand núna hætta menn ekki að veiða og vona ég að sem flestir ykkar kæru veiðimenn sjái sér hag í að versla við okkur. Mun ég koma til móts við óskir ykkar eftir bestu getu og hlakka til að heyra í ykkur.
Með ósk um ánægjulegt veiðisumar.
Þröstur Elliðason |