Veiðin hófst í miklum kulda

3.apríl 2010

Það var vægast salt kalt er Aðalsteinn Jóhannsson og félagar hófu veiðar í Minnivallalæk að morgni 1. apríl, 11 stiga frost og rok!. Enda var dræm taka og það var ekki fyrr en aðeins hlýnaði síðdegis að það komu þrír fiskar á land. Daginn eftir komu fimm á land og í morgun er opnunarhollið lauk veiðum bættust við þrír fiskar svo samtals gaf hollið 11 fiska. Þeir stærstu voru 70 cm og í góðum holdum svo það gætu verið um 7-9 punda fiskar en öllu var sleppt og stærð því áætluð. Veiðin var nokkuð dreifð, veiðistaðirnir Húsabreiða, Stöðvarhylur, Djúphylur, Arnarhólsflúð og Arnarhólsbreiða gáfu fiska. Spáð er hlýnandi veðri og næsta vika gæti lofað góðu.

Laus leyfi hafa verið uppfærð á vefnum og ennþá er nokkuð um göt í vor í „Minni“ og því hægt að komast þar að í seinnihluta apríl og fram eftir maímánuði.

 

 

Minnivallalækur
Þessi var stærstur í opnunarhollinu í Minnivallalæk, 70 cm langur
Minnivallalækur
Á okkar vegum voru erlendir veiðimenn að veiðum í Tungulæk 1-2 apríl og þar á meðal þessi ungi maður með einn flottan sjóbirting þaðan!  

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is


 
Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is