En mesta stórruriðaveiði sem um getur!

9.apríl 2010

Það hefur gengið mikið á í Minnivallalæk eftir að fór að hlýna fyrir tveimur dögum. Þá var að veiðum hópur norskra veiðimanna í læknum sem þekkja hann vel og þeir lentu aldeilis vel í því er þeir fundu út hvað fiskurinn vildi taka. Best var að veiða djúpt uppstreymis með örlitlum en þyngdum púpum og fengu þeir 12-15 fiska þá á land en misstu fljölmarga. Ástæðan fyrir því var sú að stærðirnar á flugunum var allt niður í 18-22 og taumarnir þar af leiðandi 4-7 pund sem lítið höfðu í „risana“  að gera sem voru að taka flugurnar og slitu oftast eftir stutta stund. Sá minnsti sem náðist á land var áætlaður 3 pund en hinir allt að 70 cm fiskar og spikfeitir flestir og þá um og yfir 10-12 pund margir hverjir! Sá stærsti náðist á púpu af stærðinni 22! Veiðin var dreifð og töldu þeir mikið af stórum fiski víða um ánna.

Þeir luku veiði á hádegi í dag og við tók hópur íslendinga. Einn þeirra sem var að koma í fyrsta sinn, Sveinn Speight var nýbúinn að skipta úr 9 punda taum yfir í 15 punda þegar stórfiskur tók nú í kvöld Black Ghost flugu í Stöðvarhyl og eftir 30 mínútna viðureign náðist þessi svakalegi hængur sem sést hér á myndunum. Var hann 83 cm og áætlaður 15-16 pund líkt aðrir fiskar af þessari lengd (og breidd) hafa verið úr læknum. En myndirnar tala sínu máli og ánægðari veiðimann er varla hægt að ímynda sér.

Minnivallalækur


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is


 
Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is