Það er vorlegt á landinu þessa dagana og minni okkur á það að óðum styttist í það að veiðin hefjist 1. apríl í Minnivallalæk. Hefur oft verið líflegt þá enda fiskur hungraður undan vetri og í tökustuði. Ágætlega er bókað í Minnivallalæk í apríl en þó er sjálf páskahelgin e.h. 3. apríl og til hádegis 5. Apríl með laust holl aldrei þessu vant! Silungsveiðin í Breiðdalsá hefst 1. maí og hefur sjóbleikjan alltaf verið mætt niður í ósnum þá. Næst á eftir opnar svo Fögruhlíðarósinn 1. júní og verður spennandi að fylgjast með þessum opnunum.
Laus leyfi hafa verið uppfærð á vefnum og má finna þar ýmisleg mjög áhugavert þó mikið sé bókað.
|
 |
Flottur fiskur úr Minnivallalæk |
|