Góður morgun í Hrútu og Breiðdalsá

1.júlí 2010

BreiðdalsáÞað byrjaði mjög vel í Hrútu í morgun laxveiðin. Tveir stórlaxar 86 og 83 cm náðust og tveir aðrir minni komu líka á land. Nokkra aðra var sett í sem fóru af. Var lax greinilega nokkuð dreifður um ánna og vart alveg upp í Réttarstreng.

Í Breiðdal var sett í 5 laxa en tveir náðust á land, en presthjóninn á Heydölum Gunnlaugur og Sjöfn fengu þessa fyrstu fiska. Voru það reyndar smálaxar og úr Bryggjuhyl í Tinnudalsá. Settu þau í tvo aðra laxa þar í viðbót sem ekki náðust á land. Vart var við laxa á fleirri stöðum en ekki vildu þeir taka eða fóru af  eftir snarpar viðureignir. Nú rignir mikið hér fyrir austan og ekki ólíklegt að áin fari í flóð, en það verða þá væntanlega góðar horfur með veiði er áin sjatnar um helgina ef veðurspá gengur eftir.
Ennþá eru lausar 1-2 stangir í Breiðdalsá 5-8 júlí, spyrjið um nánari upplýsingar.


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is


 
Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is