Fréttir úr Breiðdal og Jöklu

3.júlí 2010

Það hefur rignt óhemju í Breiðdalnum meira og minna síðan síðdegis á opnunardaginn 1. Júlí  og kraftaverk að það veiðist þó eitthvað enda Breiðdalsá nú mikið stórfljót. Þó fékkst lax í morgun og í gær neðan við Skammdalsbreiðu þar sem venjulega er grynningar og þar með eru 5 laxar komnir á land úr ánni. Hér má sjá Rúnar Guðjónsson glíma við laxinn á breiðunni, og síðan með laxinn sem var hrygna 83 cm og um 6 kg. Nú er að fara að stytta upp og ætti áin að verða veiðanleg fljótlega aftur eftir helgi.

Breiðdalsá Breiðdals
   

JöklaJökla gaf í morgun fyrsta laxinn er bændur voru að skoða ánna skammt ofan við Þjóðvegsbrú þar sem gera þarf lagfæringar á gönguhindrunum fyrir laxinn við svokallaðan Steinboga. Enn þeirra Jói frá Giljum tók stöng með og fékk um leið lax  sem var einnig maríulax hans og frúin var ánægð með fenginn eins og sést á myndinni!

 


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is


 
Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is