Veiðifréttir og laus veiðileyfi

10.maí 2010

Fyrstu tvo dagana í maí veiddist ágætlega af bleikju í Breiðdalsá eins og sjá má á myndum hér. En síðan var reynt aftur núna um helgina og var þá rólegt, einnig var þá smástreymt sem getur haft áhrif en það sýnir hvað sjóbleikjan getur  verið óútreiknanleg og aldrei á vísan að róa.

Minnivallalækur hefur verið minna stundaður í vor en oft áður og veiði verið oftast mjög góð þegar reynt hefur verið, en í sólinni um helgina síðustu var þó lítið um tökur. En veiðimönnum ber öllum saman um að mikið af urriða er í læknum og alveg sérstaklega mikið af gríðarstórum „ísaldarurriðum“ og hafa allavega 4 fiskar veiðst sem eru á bilinu 10-15 punda að talið er! Mynd af einum slíkum fylgir með hér.

Staða lausra leyfa hefur veið nýuppfærð á vefnum. Næstu tvær vikur er mikið laust í Minnivallalæk og hægt að bóka með stuttum fyrirvara og eru þá síðustu forvöð að komast þá í lækinn, því eftir það  eru flestir dagar allt til
ágústmánaðar bókaðir.

Silungasvæðið í Breiðdal er mikið laust þar til eftir 20. maí er þéttast fer í bókun. Þó er reytingur laus til byrjun júní en fullbókað næstu vikur á eftir. Þó er helgin  18-20 júní enn laus! Í júlí og síðar er töluvert laust þó bleikjuveiðin sé ekkert síðri þá, ásamt því að töluverð laxveiðivon er þá einnig á svæðinu.
Ágætlega er bókað í laxinn í Breiðdalsá, en þó eru nokkrar mjög svo  áhugaverðar stangir lausar í tveim hollum á frábærum tíma eða 23-26 júlí og 26-29 júlí. Flottur tími, bæði nýr stórlax og smálax og einn skemmtilegasti tíminn í ánni.   

Breiðdalsá
Breiðdalsá

Hrútafjarðará er nánast fullbókuð, einungis laus ein stök stöng í tveim hollum á besta tíma í lok júlí og í byrjun ágúst eða 30. júlí-2. ágúst og 2-5. ágúst. Metveiði var í ánni sl. sumar og flestir vildu halda sínum hollum áfram í ánni. Gerður hefur verið nýr samningur við Veiðifélag Hrútafjarðarár og því munu Strengir áfram geta boðið upp á þessa gjöfulu laxveiðiá á næstu árum.

Jöklusvæðið er að fest sig í sessi sem laxveiðiá ásamt góðri sjóbleikjuveiði á hóflegu verði.Er ljóst að eftirspurn er að aukast á svæðið og þó fjarlægð sé mikil frá t.d Reykjavík er verð veiðileyfa fyllilega samkeppnisfært þrátt fyrir aukin ferðakostnað. Reytingur er af lausum leyfum  á dreifð yfir laxveiði tímann júlí- september eins og sést á vefnum. Mikið er enn laust í Fögruhlíðarósinn en veiði hefst þar um næstu mánaðarmót fyrir sjóbleikjuna og verður hann seldur sér í allt sumar.

Breiðdalsá Minnivallalækur
Breiðdalsá Minnivallalækur

 


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is


 
Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is