Það er fyrst í dag sem hægt hefur verið að veiða Breiðdalsá almennilega frá opnun vegna flóða og morguninn gaf 10 laxa. En stóru tíðindin eru að þá kom að því að þeir stóru mættu til leiks og veiddist á Skammadalsbreiðu lax í morgun sem vó 12,5 kg og var hængur 106 cm langur! Ummál var 50 cm svo hann var vel í holdum. Laxinn tók Black and Blue keilutúpu og veiðimaðurinn er Richard Arnold frá Englandi og tók viðureignin 40 min þrátt fyrir að hann var með öfluga 16 feta tvíhendu og sterkan taum undir og tók vel á honum. Laxinn var ekki lúsugur og hafði verið einhvern tíma í ánni. Að lokum mælingum og myndatökum var honum sleppt aftur og hefur verið vart við fleiri bolta af þessri stærð og eflaust er þetta bara byrjunin á miklu stórlaxasumri 2010!
 |
 |
| Leiðsögumaður Richards Tómas Baldvinsson með þann stóra nýkomin í háfinn. |
og í höndum Richard áður en honum var sleppt |
Hrútfjarðará er einnig að gefa þá stóra og marga, gott vatn og frábær skilyrði þar. Tveir laxar um og yfir 10 kg hafa veiðst þar. 100 og 103 cm langir og fékkst sá stærri á Stokksbroti á hitch af Kristmundi Jónassyni kokki og veiðimanni. Fleiri stórir hafa sést eða farið af og mikið af laxi og stefnir í flott sumar í Hrútu.
Jöklusvæðið hefur verið lítið stundað en ljóst að einhver lax er komin þar og 8 laxar hafa veiðst þegar reynt hefur verið. Nú eru skilyrði að vera góð eftir rigningar og fer þá að hitna í kolunum þar á næstu vikum.
Þess má geta að laus leyfi hafa verið uppfærð á vefnum og ýmislegt mjög gott er þar ennþá á boðstólum eins og sjá má.
 |
 |
| Ari Edwald með einn 17 punda sem tók hitch í Sírus í Hrútu nýlega. |
Vænn lax úr Eiðsbreiðu í gærkvöldi úr Laxá í Jökulsárhlíð á Jöklusvæðinu |
Tveir aðrir vænir laxar voru að koma á land núna síðdegis, hrygna 95 cm og ummálið er 50 cm og tæp 10 kg að þyngd. Sami veiðimaður tók svo annan 90 cm hæng stuttu síðar, einnig mjög feitur með ummálið 47 cm, báðir fiskarnir voru teknir í Klapparhyl sem er neðsti veiðistaðurinn í Breiðdalsá og greinilega mikið af nýjum laxi að koma inn þar núna. |