Fréttir af fiskum og veiðileyfum

19. júní 2010

Fyrir nokkrum dögum sáust laxar í Brúarhylnum í Síká við Hrútafjarðará sem er óvenju snemmt. Allavega tveir laxar voru þar á ferð og hugsanlega sá þriðji. Ekki var sjálf Hrútafjarðará skoðuð nema í veiðistaðnum Bálk við gömlu brúna og þar sást ekki lax. En það er öruggt að fleiri laxar eru á svæðinu ef hann er komin í Síká. Áin er nánast uppseld, laust er um mánaðarmótin júlí-ágúst 1 stöng, en hugsanlegt að losni eitt holl í júlí, skýrist á næstunni.

Silungsveiðimenn í Breiðdalsá við þjóðvegsbrúna sáu  til laxa á ferð í vikunni svo hann er mættur þar einnig. Í báðum ánum hefst veiði 1. júlí og verður spennandi að sjá hvernig gengur þá. Miðað við mjög góða veiði í þeim ám sem opnað hafa er von á góðu og ennþá eru nokkrar stangir lausar í Breiðdalsá í júlí. Fyrst má nefna hollið 5.-8. júlí  þar sem 4 stangir eru lausar og mikil stórlaxavon er þá. Sumarið 2009 kom 12 kg lax á land 8. júlí og aðrir litlu minni einnig þá vikuna. Ef farið er til ársins 2008 fékk þá einn veiðimaðurinn tvo laxa um 10 kg á einum og  sama deginum í þessu holli!  Einnig eru lausar 2 stangir í hollinu 14.-17. júlí, 23.-26. júlí og 26.-29 júlí. Og það voru að losna 4 stangir 1.-4. ágúst sem er frábær tími í Breiðdalsá þar sem mikill smálax er að hellast inn á eftir stórlaxinum sem kemur í júlí.

Það hefur verið að bókast ágætlega í nýja Jöklusvæðið, en þó eru nokkrar eyður hér og þar. Sérstaklega vil ég vekja athygli á tveggja daga holli 15.-17. ágúst og aftur þrír dagar 25.-28. ágúst og hófleg verð miðað við veiðivon er óhætt að segja. Fyrsti laxinn veiddist þó á svæðinu 2. júlí í fyrra svo það getur verið mjög spennandi mánuður líka og nokkuð um lausar stangir þá.

Minnivallalækur hefur verið að gefa feiknaveiði af stórurriða og hef ég ekki tölu á öllum þeim fiski veiddum þar yfir 70 cm, en einn 81 cm kom í þessarri viku svo vitað sé. Mikið bókað og ekki laust fyrr en í ágústmánuði í þeirri verstöð eins og sjá má á vefnum okkar undir laus leyfi.

Veiðin hefur verið dyntótt í bleikjunni fyrir austan í Breiðdal í vor. Komið skot en dottið niður á milli, en bleikjan er vænni en oft áður. Uppselt er þar í bleikjuna í júní en töluvert laust eftir það.

 

Þessi svakalegi lax kom á land 7. júlí 2008 í miklu stórlaxaholli í Breiðdalsá.
Glímt við lax á Sauðárbreiðu í Kaldá við Jöklu morguninn
25. júlí 2009. Þetta var einn af 8 löxum sem teknir voru á þessari vakt þar!
Fögruhlíðarósinn er að detta inn, ekki oft verið farið en menn þá yfirleitt verið að fá einhverjar sjóbleikjur í hvert skipti. Einnig ofar og á Jöklusvæðinu við hliðarárnar Laxá og Fossá hafa veiðst bæði bleikjur og sjóbirtingar. Boðið verður upp á flugukastkennslu og veiði helgina 26.-27. júní  næstkomandi á svæðinu og þegar er vel bókað, en áhugasamir hafi samband til að fá nánari upplýsingar. Töluvert laust í sumar í ósinn og einn af fáum stöðum þar sem sjóbleikjan virðist halda velli hér á landi.

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is


 
Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is