Það fengust 15 laxar bara á einum degi í Jöklusvæðinu núna í vikunni og er dagsveiðin þá farin að slá hátt upp í svipað og í Breiðdalsá ef það heldur áfram. Reyndar er von á yfirfalli á næstu dögum úr Kárahnjúkastíflu sem er óvenju snemma. Í fyrra var það í september sem það kom, en þó er það ekki mikið vandamál þar sem megnið af veiðinni er í þverám sem renna í Jöklu. Eru það árnar Kaldá, Laxá, Fossá ásamt nærliggjandi Fögruhlíðará sem rennur beint til sjávar við hlið ósa Jökulsár. Hátt í 100 laxar eru búnir að veiðast á svæðinu sem er frábær veiði og sérstaklega þegar tekið er tillit til að svæðið hefur verið lítið stundað fyrri hluta mánaðarins. Nú er vel bókað framundan en laust þó tvo daga 15-17 ágúst og aftur í lok ágúst og byrjun september í tvo daga. Töluvert síðan eftir 12. september einnig.
Breiðdalsá er að detta í 300 laxa sem er 100 löxum meira en hefur verið í júlí áður. Stefnir í metár og þarf mikið að ganga á ef 1000 laxa múrinn verði ekki tekin í ár!
Hrútafjarðará hefur lítið vatn en síðasta holl fékk þó eftir tvo daga 11 laxa. Um 100 laxar hafa veiðst þar. |
 |
| Veitt ķ Kaldį ķ vikunni, en žar hefur veišin tekiš vel viš sér. |
|