Breiðdalsá
Breiðdalsá silungsveiði
Hrútafjarðará
     Veiðileyfi
     Gisting
     Myndir
Laxá í Nesjum
Jökla og Fögruhlíðará
J og F silungsveiði
Minnivallalækur

 

Hrútafjarðará
Ein gjöfulasta fluguveiðiá landsins

Hrútafjarðará ásamt Síká átti enn eitt frábært veiðisumarið, glæsileg metveiði skilaði sér, en áin gaf 642 laxa á stangirnar þrjár og það þrátt fyrir nokkra þurrka og ill skilyrði. Eitthvað var um stórlaxa, þar af tveir sem losuðu 10 kg, en það voru gríðarlega öflugar smálaxagöngur sem báru uppi metveiðina og var lax gekk einnig allt til loka veiðitímans. Sjóbleikjuveiðin var með dauflegra móti en 64 bleikjur voru færðar til bókar, en nokkrar mjög  vænar.

Hrútfjarðará

Júlíus leiðsögumaður með einn góðan úr Hamarshyl sem gaf 132 laxa sumarið 2009!

Veiðihús: Er í landi Bálkastaða neðarlega við ána að austanverðu, á milli Síkár og gamla Staðarskála. Fjögur tveggja manna herbergi eru í húsinu sem eru með uppbúnum rúmum og handklæðum við komu veiðimanna er mega koma um og eftir kl. 14 á komudegi. Því geta átta manns gist í húsinu. Tvö baðherbergi með sturtu, sérstakt vöðlu- og þurrkherbergi og fiskmóttaka eru í húsinu. Gott eldhús og stofa með stórum arni setur mikinn svip á allt húsið. Ný stór verönd með grilli og heitur pottur eru þar einnig. Veiðimönnum ber að þrífa húsið fyrir brottför.

Hrútafjarðará - Almennar upplýsingar
Staðsetning: Fjarlægð frá Reykjavík: 160 km
Veiðisvæði: Hrútafjarðará öll ásamt Síká.
Tímabil: 1.júlí - 30.september
Veiðileyfi:

Tveir eða þrír dagar í senn frá hádegi til hádegis.

Daglegur veiðitími: 1. júlí ─ 14. ágúst kl. 7─13 og 16─22 en eftir 15. ágúst kl. 15─21 eftir hádegi og kl. 14─20 eftir 7. september. Á lokadegi skal veiði lokið kl. 12:00.
Fjöldi stanga: Leyfðar eru 3 stangir.
Verð:

Kr. 29.000 – 98.000 og er húsgjald með uppbúnum rúmum innifalið

Veiðireglur: Fluga eingöngu leyfð og hirða má allan afla, nema skyllt er að sleppa aftur hrygnum 70 cm og stærri.
Vinsælar flugur: Rauð Frances, Sunray Shadow, mikrótúpur, hitch túpur, Blue Charm, Collie Dog, Snælda og fl. 
Veiði síðastliðið ár:

642 laxar og 64 sjóbleikjur

Umsjónarmaður/veiðivörður:

Árni Jón Eyþórsson í síma 894 2248 og 451 1148.

Sjá kort 1, 2, 3 og 4 af veiðisvæðinu.


Sjá gamalt kort af veiðisvæði eftir Major General R.N Stewart

Sjá heildarveiði á veiðistöðum 1997-2009

Hrútá
Hrútá
Einn af fjölmörgum löxum sumarsins að koma á land úr Staðartunguhyl, þar var aldeilis mokveiði 2009 og veiddust þar um 150 laxar!


Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax 567 5204 - Gsm 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is