Breiðdalsá
Breiðdalsá silungsveiði
Hrútafjarðará
Laxá í Nesjum
     Veiðileyfi
     Gisting
     Myndir
Jökla og Fögruhlíðará
J og F silungsveiði
Minnivallalækur

 

Laxá í Nesjum
Ódýr og góð laxveiðiá

Óvíst er hvort Laxá í Nesjum verður í sölu hjá veiðiþjónustunni Strengir fyrir veiðisumarið 2010. Nánari upplýsingar síðar.

Laxá í Nesjum

Hann er á í Laxá í Nesjum!

Laxá í Nesjum

Enn bjóðum við upp á þessa nettu og fallegu tveggja stanga laxveiðiá skammt utan við Höfn í Hornafirði. Vertíðin í fyrra gaf 162 laxa sem er fín veiði á stangirnar tvær og miðað við þá hóflegu verðlagningu er ein bestu kaupin í laxveiði hérlendis. Eitthvað veiddist líka af silungi og þá aðallega sjóbirtingi. Þessi litla á gaf líka nokkra sannkallaða stórlaxa og var þar stærstur 11 kg lax og 102 cm langur úr Ármótahyl 5. ágúst og var sleppt aftur. Annar 10.5 kg veiddist síðar á sumrinu og var hann einnig örmerktur úr gönguseiðasleppingu okkar tveim árum áður.        Laxá í Nesjum er afar góður kostur miðað við verð og veiðhúsið ágætt.

Laxá í Nesjum  - Almennar upplýsingar
Staðsetning: Fjarlægð frá Reykjavík: 450 km.
Veiðisvæði: Laxá í Nesjum öll frá ósi við Ármótahyl og upp ánna.
Tímabil:

Veiðitíminn er frá 5. júlí - 30. september

Veiðileyfi:

Tveir eða þrír dagar í senn frá hádegi til hádegis.

Daglegur veiðitími:

10.júlí - 8.ágúst kl.7-13 og 16-22 en eftir 8.ágúst kl.15-21

Fjöldi stanga: Leyfðar eru 2 stangir. Einungis seldar saman.
Verð:

Kr. 9.900 – 28.900 og húsgjald með uppábúnum rúmum og handklæði er nú innifalið.

Veiðireglur:

Fluga og maðkur leyfður og hirða má allan afla, nema skyllt er að sleppa aftur hrygnum 70 cm og stærri.

Vinsælar flugur: Rauð Frances, Svört Frances, Snælda, míkrótúpur, og fl..
Veiði síðastliðið ár:

162 laxar og 26 silungar

Umsjónarmaður/veiðivörður:

Veiðieftirlit hjá Borgari Antonssyni í síma 860 7810

Sjá kort af veiðisvæðinu.

Skemmtilegt umhverfi er við Laxá og veiðistaðir fjölbreyttir

 

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax 567 5204 - Gsm 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is