Breiðdalsá
Breiðdalsá silungsveiði
Hrútafjarðará
Laxá í Nesjum
Jökla og Fögruhlíðará
J og F silungsveiði
Minnivallalækur
     Veiðileyfi
     Gisting
     Myndir

 

Minnivallalækur
Stórurriðaveiði

Sumarið 2009 var mjög gott í Minnivallalæk, heildarveiðin tæplega 400 urriðar og margir sannkallaðir drjólar! Síðustu sumur hafa verið einhver mestu stórfiskasumur sem um getur í Minnivallalæk. Nokkrir um og yfir 10 punda urriðar veiddust og fjölmargir 3─4 kg einnig. Menn vita á hverju þeir geta átt von á í Minnivallalæk og hann er eitt af flaggskipunum okkar, einstök á sem á ekki sinn líka í flórunni hér á landi. En menn þurfa að vera opnir og athugulir til að komast í mjúkinn hjá þessari á. Þess eru dæmi að menn hafi komið í fyrsta skipti og lent strax í ævintýrum. Aðrir hafa þurft meiri tíma enda á  veiðiskapurinn í henni það til á stundum að verða tæknilegur og fiskur hvumpinn og dyntóttur.

Minnivallalækur
Stórurriði 11. September 2009 úr Arnarhólsbreiðu.

En nálægðin við fiskinn og ótrúleg stærð einstakra urriða í ánni er það sem fær svo marga til að koma aftur og aftur. Árlega veiðast um og yfir 10 punda fiskar í ánni og vitað er að víða í ánni, t.d. á Húsabreiðu, í Stöðvarhyl og við Viðarhólma, svo að einhverjir staðir séu nefndir, hafa hreiðrað um sig urriðar sem eru varla af þessum heimi, tröll sem liggja á bilinu 7,5 til 10 kg. Menn hafa séð þá og menn hafa sett í þá.

Við viljum einnig benda mönnum á að æ fleiri eru að uppgötva að haustið getur verið gjöfull tími þar sem urriði er annars vegar. Urriði verður árásargjarn er nær dregur hrygningu, rétt eins og laxinn, og það voru hópar hjá okkur í Minnivallalæk í september 2009 sem veiddu mjög vel. Þetta er tími sem hefur verið illa nýttur í gegnum tíðina.


Minnivallalækur  - Almennar upplýsingar
Staðsetning: Fjarlægð frá Reykjavík: 110 km
Veiðisvæði: Allur Minnivallalækur
Tímabil:

Veiðitíminn er frá 1. apríl - 30. september.

Veiðileyfi:

Seldir eru tveir eða þrír dagar í senn, frá hádegi til hádegis.

Daglegur veiðitími: Daglegur veiðitími er tvisvar sinnum 6 klst., þar sem hvíldartíminn má vera breytilegur eftir dagsbirtu og óskum veiðimanna.
Fjöldi stanga:

Leyfðar eru 4 stangir sem eru helst seldar saman.

Verð:

Stöng á dag er á kr. 19.800 og húsgjald með uppbúnum rúmum og handklæðum er innifalið.

Veiðireglur: Fluga er eingöngu leyfð og sleppa skal öllum fiski en skal bókaður í veiðibók. Þríkrækjur ekki heimilaðar, hvorki á túpur eða sem smærri flugur.
Vinsælar flugur: Black Ghost, Dog Nobler, Green Montana, ýmsar smáar púpur og þurrflugur allt niður í stærð 18─20 o.fl.
Veiði síðastliðið ár:

372 urriðar og 3 bleikjur.

Meðalþyngd síðasta árs : Um 2 kg
Umsjónarmaður/veiðivörður: Högni Sigurjónsson, sími 487 6518, 865 6425 (Elías, sími 696 1378).
Veiðihús: Veiðihúsið Lækjamót
Aðvörun!: Að gefnu tilefni er veiðimönnum bent á að hestar geta komist að bílum við lækinn og engin ábyrgð er tekin á tjóni sem þeir geta valdið. Fylgist því með bílum ykkar við veiðar!

Myndband frá september 2005.

Myndband frá apríl 2006.

Myndband frá Minnivallalæk 2006.

Sjá kort af veiðisvæðinu.

Veiði eftir veiðistöðum og stærstu fiskar 2001-2009

Minnivallalækur
Þessi tók þurrfluguna á Húsabreiðu 13. ágúst 2009.

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax 567 5204 - Gsm 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is