Strengir

EnglishEnglish

SpainEspañol

FranceFrançaise

GermanDeutsch

ItaliaItaliano

Suomalainen

 

Kvikmyndahátið

Þann 10. mars n.k. verður haldin í annað sinn á Íslandi Fluguveiði kvikmyndahátíð undir merkjum RISE. Hátíðin var haldin í fyrsta sinn í fyrra og seldist upp á sýninguna. Í kjölfar vinsælda hátíðarinnar árið 2011 hefur verið ákveðið að halda hana aftur í Bíó Paradís þann 10. mars eins og áður segir.

 

Stjáni með einn  vænan í Minnivallalæk í vorveiði þarStjáni með einn vænan í Minnivallalæk í vorveiði þarÞann 10. mars n.k. verður haldin í annað sinn á Íslandi Fluguveiði kvikmyndahátíð undir merkjum RISE. Hátíðin var haldin í fyrsta sinn í fyrra og seldist upp á sýninguna. Í kjölfar vinsælda hátíðarinnar árið 2011 hefur verið ákveðið að halda hana aftur í Bíó Paradís þann 10. mars eins og áður segir.

Við hjá Veiðiþjónustunni Strengir erum stolt að tilkynna að við munum halda áfram sem styrktaraðilar fyrir hátíðina eins og í fyrra. Við viljum leggja okkar af mörkum svo svona sýning geti farið fram og þannig bætt við dagskrána hjá áhugafólki um stangveiðar svona áður en tímabilið byrjar.

Miðaverð er það sama og í fyrra eða Kr. 2.100,- og fer miðasala fram í Veiðivon Mörkinni 6.

Einnig er hægt að panta miða með því að senda Stjána Ben tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og sækja svo pantaða miða í Veiðivon. Það er vissara að hafa hraðar hendur því Stjáni segir okkur að miðasala hafa rokið af stað og nú séu færri en helmingur miða eftir og enn langt í settan dag.
Sýningin hefst kl. 20:00 en við hvetjum alla til að koma fyrr, hitta aðra veiðimenn, spjalla um veiði og njóta félagsskaparins áður en sýning hefst. Bíó Paradís er einmitt tilvalinn staður til að hittast og spjalla fyrir sýningu.

Við vonumst til að sjá sem flesta í Bíó Paradís á RISE fluguveiði kvikmyndahátíð 2012 þann 10. mars n.k. Sjáumst þar!

Ennþá eru laus leyfi í Minnivallalæk í apríl og maí og tilvalið að taka þangað fyrsta túr sumarsins enda stutt frá Reykjavík.
Annars eru ýmsar mjög svo áhugaverðar stangir lausar hér og þar á okkar svæðum eins og sjá má á vefnum undir laus leyfi.

Frábært myndband úr Jöklu og laus leyfi komin á vefinn!

Nú má sjá vefnum pressan.is og Vötn og veiði myndband af fjölmörgum yfirborðstökum við Steinbogann í Jöklu um miðjan júlí. Við grípum hér niður í viðtal við veiðimanninn á VoV:

 

Nánar...

Gleðileg jól

Við sendum öllum veiðimönnum nær og fjær okkar bestu jólakveðjur og þökkum gestum okkar góð kynni árið 2011 og farsælt komandi ár.

Nánar...

Nýr 10 ára samningur um Breiðdalsá og minnum á gjafakortin!

Nú hefur verið gengið frá nýjum 10 ára samningi um veiðirétt í Breiðdalsá við Veiðifélag Breiðdæla og er ánægjulegt að geta horft svo langt fram á veginn þar enda hefur gífurlegt uppbyggingarstarf verið  framkvæmt þar undanfarin ár og áin sannað sig sem ein af bestu laxveiðiám landsins. Samstarfið hefur gengið vel við veiðifélagið og er öllum til hagsbóta á svæðinu. Einnig er Veiðiþjónustan Strengir landeigandi að jörðinni Eyjar og veiðihúsið þar er eign Strengja og er öllum hlutaðeigandi til sóma eins og þeir geta vitnað um sem gist hafa þar. Hlakka ég til að vinna áfram á sömu braut og mun án vafa Breiðdalsá áfram verða ein af þekktustu veiðiám landsins.

Nánar...

Veiðileyfasalan komin á fullt fyrir 2012

Þetta var erfitt rjúpnaveiðitímabil fyrir austan, megnið af tímanum ekki snjókorn að sjá og nánast vorblíða flesta dagana. En það bjargaði mörgum veiðimanninum á okkar vegum nýju svæðin á Jökuldalsheiðinni sem við tókum á leigu, Ármótasel og Arnórsstaðir, en þar sýnist mér að hafi fengist allavega um 300 rjúpur þetta haustið.

Nánar...

Síða 1 af 11

Veiðiþjónustan Strengir

Smárarimi 30

132 Reykjavík

Sími: 660 6890

Fax: 31 848679026

Netfang: ellidason@strengir.is

www.strengir.is