Rjúpnaveiðar hefjast næsta föstudagÞað styttist í rjupnaveiðina sem hefst næsta föstudag 28. október. Það er fullbókað á rjúpnasvæðum og í veiðihúsinu í Breiðdal alla 9 dagana sem leyft er að veiða, en vegan forfalla er eitthvað laust á Jöklusvæðum og í gistingu í veiðihúsinu þar og kostar dagurinn með gistingu kr. 20.000 á byssu og 6-8 byssur leyfðar. Er þar veitt á þrem jörðum, Sleðbrjót rétt við Veiðihúsið Hálsakot, Skriðufell neðar í Jökulsárhlíðinni ásamt Hrólfsstöðum upp í Jökuldal.
Einnig var takmarkaður aðgangur landi Arnórsstaða 1 & 2 (Ármótasel) ofar í Jökuldal við Gilsá og langt upp á Jökuldalsheiði. En nú hefur Veiðiþjónustan Strengir fengið einkarétt á öllu því landi til rjúpnaveiða sem er gríðarlega stórt eða um 9.600 hektarar! Þeir sem bóka veiði og gistingu frá veiðihúsinu hafa aðgang að þessu mikla svæði eins og áður, en í ljósi hins gríðarlega stærðar veiðsivæðisins verður einnig hægt að kaupa veiðileyfi eingöngu fyrir allt að 6-8 byssur aukalega á kr. 6.000 byssuna á dag.
Áhugasamir hafi samband sem fyrst við skrifstofu.
Loftmynd af Arnórsstöðum 1 & 2 (Ármótasel) og eins og sjá má er Jökla neðarlega til hægri, og síðan er svæðið upp með Gilsá að sunnanverðu og langt inn á heiðar.