Strengir

EnglishEnglish

SpainEspañol

FranceFrançaise

GermanDeutsch

ItaliaItaliano

Suomalainen

 

Laust í rjúpu næstu helgi

Opnunarhelgin 26. -28. október í rjúpunni gaf á milli 50-60 rjúpur bæði í Breiðdal og á Jöklusvæðum og voru á milli 6-9 manns að veiðum á hvorum stað. Rjúpan var dreifð og þurfti að hafa mikið fyrir því að finna hana en flestir fengu þó eitthvað í soðið. Það má segja að helgin á eftir 3.- 4. nóvember hafi fokið á haf út vegna óveðursins og vonlaust að veiða þann laugardag og síðan erfitt að komast á svæðin vegna ófærðar sunnudaginn 4. nóvember.

Gesti sem gistu síðan í Veiðihúsinu Hálsakoti eftir helgina sáu í góðu og björtu veðri mikið af fugli í kjarrinu bakvið veiðihúsið og virðist hún vera komin víða í kjarrið í Jökulsárhlíðinni núna eftir allan snjóinn sem komið hefur niður. Því gæti verið spennandi helgar framundan ef veður helst í lagi og ennþá eru lausar nokkrar byssur á Jöklusvæðum 17-18 nóvember með gistingu án fæðis í veiðihúsinu. Áhugasamir spyrji um nánari upplýsingar.

 Veiðimaður með rjúpur í opnun rjúpnatímans í Breiðdal í lok október. Hópur 6-9 manna fékk þá tæplega 60 rjúpur á svæðum Strengja þar. Veiðimaður með rjúpur í opnun rjúpnatímans í Breiðdal í lok október. Hópur 6-9 manna fékk þá tæplega 60 rjúpur á svæðum Strengja þar.

Share

Veiðiþjónustan Strengir

Smárarimi 30

112 Reykjavík

Sími: 660 6890

Fax: 31 848679026

Netfang: ellidason@strengir.is

www.strengir.is