Nils með 101 cm risa úr veiðistaðnum Sírus
Hann Nils Jörgensen gerði góðan túr í Hrútafjarðará á sunnudaginn var og afraksturinn má sjá á þessu myndbandi hér fyrir neðan. Og fleirri stórlaxafréttir því hollið sem tók við var að landa í dag einum 97 cm úr Sírus svo þeir virðast vera margir stórir þar. Reyndar taldi Nils að um 30 laxar væru í þeim hyl á mánudagsmorguninn. Tæplega 100 laxar hafa veiðst í Hrútu og slangur er af fiski, en eins og víða vantar smálaxinn í árnar.
Og sá næsti úr sama hyl, 97 cm á land í dag!
| Share |