Strengir

EnglishEnglish

SpainEspañol

FranceFrançaise

GermanDeutsch

ItaliaItaliano

Suomalainen

 

Veiði lokið í Breiðdalsá, Jöklusvæðinu, Minnivallalæk og Hrútu

Þá eru lokatölur úr Breiðdalsá, Jöklusvæðinu og og Hrútu komnar í hús og þær eru:

Lúsug hrygna um 80 cm veitt 2 . október í Breiðdalsá!Lúsug hrygna um 80 cm veitt 2 . október í Breiðdalsá!Breiðdalsá: Það var brokkgeng síðasta vikan og rúmlega það í Breiðdalsá vegna mikilla flóða sem komu reglulega vegna rigninga og náði áin aldrei að detta í eðlilega vatnshæð svo um hægðist verulega í laxveiðinni. Lokatalan var 1.430 laxar eins og sjá má á rafrænu veiðibókinni á vef okkar, en engu að síður glæsilegt nýtt met þar sem veiðin var jöfn og góð allt sumarið nema rétt til að byrja með júlí og lokadagana eins og áður sagði vegna flóða. Góð dreifing var á laxinum og flestir veiðistaðir með einhvern lax núna þegar veiði lauk. Stærsti laxinn var 97 cm hrygna með ummálið 47 cm og um 10 kg sem undirritaður fékk á Sunray Shadow þann 6. Ágúst. Sá fiskur fór í klak eins og margir aðrir vænir laxar úr ánni, en merkilegt þótti að engin annar stærri næðist á land þetta sumarið. Var þó sett í þá nokkra slíka sem menn misstu svo þeir eru þarna ennþá og væntanlega auka kyn sitt í ánni. Yfir sumarið var tekið gott magn af vænum fiski í klak en veitt verður áfram næstu tvo daga ef aðstæður leyfa. Ennþá er lax að ganga og t.d. í gær kom 83 cm hrygna lúsug í klakveiði á Skammadalsbeiðu!
Silungsveiðin var mun minni en oft áður en skráðir voru í veiðibók um 200 urriðar og 100 bleikjur sem veldur vonbrigðum og þá sérstaklega sjóbleikjan. Var hún þó væn þetta árið og nokkrar 4-5 punda voru þær stærstu þetta árið.

Það gengur mikið á þegar Gunnar Bender landar laxi í Fossarklöpp í Jöklu!Það gengur mikið á þegar Gunnar Bender landar laxi í Fossarklöpp í Jöklu!Jöklusvæðið: Lokatölur úr Jöklu ásamt þverám hennar Laxá, Fossá og Kaldá voru 507 laxar, en ásamt Fögruhlíðará sem tilheyrir veiðisvæðinu bætast við 57 laxar svo samtals gerir þetta 564 laxar. Ekki slæm veiði á sex stangir og þó var nýtingin ekki mjög há svo veiði per stöng á dag er vel viðunandi miðað við margar aðrar þekktari laxveiðiár þetta sumarið! Jökla sjálf var mjög góð og fór ekki á yfirfall fyrr en um miðjan september en þá voru ennþá eftir það að koma nýjar göngur af laxi, þá sérstaklega í Fögruhlíðará og Kaldá svo veiðin datt ekki mikið niður þrátt fyrir það í lokin. Mikið af vænum laxi var að veiðast og stefnir svæðið á ekki síðri stórlaxavon en Breiðdalsá ef fram fer sem horfir.
Lítið var af sjóbleikju í Fögruhlíðarósnum þetta árið, en ágætlega af vænni bleikju kom í Kaldá er leið á sumarið.

 

 

 

Óðinn Helgi Jónsson með 102 cm lax úr Hrútu rétt fyrir lokun veiðitímans!Óðinn Helgi Jónsson með 102 cm lax úr Hrútu rétt fyrir lokun veiðitímans!Hrútafjarðará: Menn hafa verið góðu vanir með 400-600 laxa undanfarinn ár í Hrútu en veiðin í sumar var 318 laxar. En ef miðað er við fleirri ár er þetta bara ágæt útkoma og rúmlega meðalveiði úr ánni. Þurrkar gerðu erfitt fyrir og heilu vikurnar síðsumars gáfu aðeins fáa laxa er verst var. Undir lokin veiddist svo vel er loks fór að rigna og t.d. var lokahollið með 21 lax. Töluvert af stórlaxi um og yfir 10 kg var í ánni og einn slíkur kom t.d. úr Ármótunum undir lokin.
Skráðar voru 120 sjóbleikjur í veiðibók sem er svipað og oft áður, en ég hef grun um að ekki hafi allar verið færðar til bókar eins og oft vill verða í silungsveiði.

 

 

 

Og flottur sjóbirtingur úr Tungulæk núna rétt fyrir sl. helgi.Og flottur sjóbirtingur úr Tungulæk núna rétt fyrir sl. helgi.Minnivallalækur: Vorið var óvenju erfitt vegna kulda og náði veiðin sér ekki á strik fyrr en síðla júní eða byrjun júlí. Góð þurrfluguveiði var þá og ágæt fram að hausti, enda hlýr september mánuður. Sást mikið líf þá en ekki var alltaf í tökustuði enda lækurinn vandveiddur og þarf tíma til að læra á hann. Um 250 urriðar náðust á land, margir vænir en stærstur var meters langur urriði í ágúst sem vó 7 kg og tók litla púpu!

Enn er veitt í Tungulæk og verður svo til 20. október. Haustveiðin hafði verið frekar róleg en síðasta vika verið eisn og menn þekkja lækinn, mikið af fiski að koma og hollið um helgina fékk yfir 30 sjóbirtinga og nokkra væna. Stærst eru 83 og 82 cm fiskar og sett hefur verið í stærri sem hafa sloppið. Það eru ennþá lausar stangir síðustu dagana á bilinu 17-20. október.

 

Veiðiþjónustan Strengir

Smárarimi 30

132 Reykjavík

Sími: 660 6890

Fax: 31 848679026

Netfang: ellidason@strengir.is

www.strengir.is