Strengir

EnglishEnglish

SpainEspañol

FranceFrançaise

GermanDeutsch

ItaliaItaliano

Suomalainen

 

Veiðileyfasalan komin á fullt fyrir 2012

Nú er komin út DVD og bók sem heitir „Leitin að stórlaxinum“ þar sem bræðurnir Gunnar & Ásmundur Helgasynir fara á kostum, þar á meðal í Breiðdalsá eins og sjá má hér.Nú er komin út DVD og bók sem heitir „Leitin að stórlaxinum“ þar sem bræðurnir Gunnar & Ásmundur Helgasynir fara á kostum, þar á meðal í Breiðdalsá eins og sjá má hér.Þetta var erfitt rjúpnaveiðitímabil fyrir austan, megnið af tímanum ekki snjókorn að sjá og nánast vorblíða flesta dagana. En það bjargaði mörgum veiðimanninum á okkar vegum nýju svæðin á Jökuldalsheiðinni sem við tókum á leigu, Ármótasel og Arnórsstaðir, en þar sýnist mér að hafi fengist allavega um 300 rjúpur þetta haustið.
 
En veiðileyfasalan fyrir árið 2012 er komin á fullan skrið og hvet ég bæði  fasta viðskiptavini Strengja og aðra að hafa samband sem fyrst því áhuginn er mikill eftir gott sumar í flestum okkar ám. Ekki verður komist hjá einhverjum hækkunum en flestar eru þær miðaðar við almennar  verðlagsþróun nema þar sem kostnaður vegna stóraukinna seiðasleppinga þarf að koma fram í verði veiðileyfa til umframhækkunar. Þó er óhætt að segja að miðað við þær tölur sem heyrast í  „bransanum“  í nokkrum ám þessa dagana eru árnar okkar mjög hóflega verðlagðar! Og „bestu kaupin á eyrinni“ eru eflaust hið nýja Jöklusvæði okkar miðað við veiddan lax á stöng á dag.
 
 Og fleirri skemmtilegir náungar sáust fyrir austan, hér eru Simmi og Jói galvaskir með einn smálax. Og fleirri skemmtilegir náungar sáust fyrir austan, hér eru Simmi og Jói galvaskir með einn smálax.NÝTT! Hlutfall veiddra og slepptra laxa í Breiðdalsá og Jöklusvæðinu var tæplega  50% sumarið 2011. Þó var megnið af aflanum stórlax og undantekningarlaust var einnig nánast allur smálax drepin þó menn hittu jafnvel á mokveiði ef þeir voru heppnir. Ég hef aldrei verið talsmaður þess að eingöngu veiða og sleppa eða hafa kvóta á laxi, en nú verður ekki undan komist að herða reglur fyrir 2012 í þessum ám.  Sleppiskylda verður á öllum 70cm laxi og stærri og kvóti tveir laxar á stöng á dag sem má hirða af smálaxi. Og í Steinboganum í Jöklu og ofar í Jökuldal verður sleppiskylda á öllum laxi enda vannýtt uppeldiskilyrði þar fyrir náttúruleg laxaseiði og vantar meiri hrygningu þar. Maðkur verður bannaður í Breiðdalsá en áfram leyfilegur í september á Jöklusvæðinu. Spónveiði verður áfram leyfð í september í báðum ám enda ekki vandamál að sleppa spónveiddum laxi aftur í flestum tilfellum. Í Hrútafjarðará verður engin kvóti, en sleppiskylda á stórlaxi, en áður hafði verið mælst til að sleppa honum.
Með þessum ráðstöfunum náum við að vernda stórlaxinn ásamt því að veiðimenn fái samt laxa í „soðið“, t.d. eftir þriggja daga holl ættu flestir að vera sáttir að geta tekið með sér heim sex smálaxa á stöngina tel ég!
 
Á vefnum hafa upplýsingar nú að mestu verið uppfærðar fyrir 2012 en endilega sendið inn fyrirspurnir, ég mun gera mitt besta til að leysa úr óskum ykkar.

 

Veiðiþjónustan Strengir

Smárarimi 30

132 Reykjavík

Sími: 660 6890

Fax: 31 848679026

Netfang: ellidason@strengir.is

www.strengir.is