Þrjár kynslóðir veiðimanna, sá elsti er John Wreyford frá Englandi sem komið hefur í Breiðdalsá í 8 ár og veitt þá nokkra 20 punda og stærri, og sonur hans Rob og sonarsonur Matt með fyrsta laxinn sinn. Má vænta að þeir verði áfram um mörg ókominn ár enda tekið ástfóstri við ánna líkt og margir aðrir sem komið hafa í dalinn.Nú hefur verið gengið frá nýjum 10 ára samningi um veiðirétt í Breiðdalsá við Veiðifélag Breiðdæla og er ánægjulegt að geta horft svo langt fram á veginn þar enda hefur gífurlegt uppbyggingarstarf verið framkvæmt þar undanfarin ár og áin sannað sig sem ein af bestu laxveiðiám landsins. Samstarfið hefur gengið vel við veiðifélagið og er öllum til hagsbóta á svæðinu. Einnig er Veiðiþjónustan Strengir landeigandi að jörðinni Eyjar og veiðihúsið þar er eign Strengja og er öllum hlutaðeigandi til sóma eins og þeir geta vitnað um sem gist hafa þar. Hlakka ég til að vinna áfram á sömu braut og mun án vafa Breiðdalsá áfram verða ein af þekktustu veiðiám landsins.
Vil minna núna á gjafakort okkar sem tilvalinn jólagjöf fyrir veiðimanninn og nú fylgir með öllu gjafakortum bolur með merki Strengja í kaupbæti.
Og veiðileyfasalan er á fullu og ég mæli með að menn hafi samband frekar fyrr en seinna, enda eftirspurn góð fyrir 2012.