![]() |
| Hrikalegar aðstæður eru þarna til löndunar í Steinboganum. En myndbandið er tekið ofan af klettunum þarna vinstra megin og eins gott að agnhaldið var tekið af flugunni og laxarnir fóru fljótlega af eins og sjá má hér. |
Nú má sjá vefnum pressan.is og Vötn og veiði myndband af fjölmörgum yfirborðstökum við Steinbogann í Jöklu um miðjan júlí. Við grípum hér niður í viðtal við veiðimanninn á VoV:
„Ómar Ómarsson, stangaveiðimaður og lesandi VoV sendi okkur glaðning af betri sortinni nú í vikunni. Um er að ræða myndskeið frá Steinboganum í Jöklu. Hvílíkt ævintýri hér á ferð.....Ómar hefur orðið: „Við félagarnir lentum í sérstökum aðstæðum í Steinboganum í Jöklu s.l. sumar þar sem laxinn var óvenju tökuglaður. Báturinn var ekki kominn á sinn stað þannig að við gátum ekki komist á efsta svæðið, þannig að þegar við komum auga á laxinn af klettunum tókum við agnhaldið af Kolskegg þar sem ómögulegt var að landa og köstum á torfuna með meðfylgjandi árangri. Við sjáum eftir því dag að hafa ekki myndað lengur því við misstum af nokkrum skemmtilegum atvikum þar sem laxarnir hreinsuðu sig alveg á eftir flugunni. Góður dagur og munum við eflaust mæta næsta sumar í Jöklu.“
Og nokkuð nákvæm staða lausra leyfa hefur líka verið sett á vefinn eins og sjá má á www.strengir.is. En það er líka mikil hreyfing á leyfum og staðan er því fljót að breytast þessa dagana. Mun ég uppfæra ört á næstunni og því um að gera að fylgjast með lausum leyfum ef þið hafið hug á að bóka og hafið því samband við mig sem fyrst.
Hlakka til að heyra í ykkur...
.jpg)