Stjáni með einn vænan í Minnivallalæk í vorveiði þarÞann 10. mars n.k. verður haldin í annað sinn á Íslandi Fluguveiði kvikmyndahátíð undir merkjum RISE. Hátíðin var haldin í fyrsta sinn í fyrra og seldist upp á sýninguna. Í kjölfar vinsælda hátíðarinnar árið 2011 hefur verið ákveðið að halda hana aftur í Bíó Paradís þann 10. mars eins og áður segir.
Við hjá Veiðiþjónustunni Strengir erum stolt að tilkynna að við munum halda áfram sem styrktaraðilar fyrir hátíðina eins og í fyrra. Við viljum leggja okkar af mörkum svo svona sýning geti farið fram og þannig bætt við dagskrána hjá áhugafólki um stangveiðar svona áður en tímabilið byrjar.
Miðaverð er það sama og í fyrra eða Kr. 2.100,- og fer miðasala fram í Veiðivon Mörkinni 6.
Einnig er hægt að panta miða með því að senda Stjána Ben tölvupóst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
og sækja svo pantaða miða í Veiðivon. Það er vissara að hafa hraðar hendur því Stjáni segir okkur að miðasala hafa rokið af stað og nú séu færri en helmingur miða eftir og enn langt í settan dag.
Sýningin hefst kl. 20:00 en við hvetjum alla til að koma fyrr, hitta aðra veiðimenn, spjalla um veiði og njóta félagsskaparins áður en sýning hefst. Bíó Paradís er einmitt tilvalinn staður til að hittast og spjalla fyrir sýningu.
Við vonumst til að sjá sem flesta í Bíó Paradís á RISE fluguveiði kvikmyndahátíð 2012 þann 10. mars n.k. Sjáumst þar!
Ennþá eru laus leyfi í Minnivallalæk í apríl og maí og tilvalið að taka þangað fyrsta túr sumarsins enda stutt frá Reykjavík.
Annars eru ýmsar mjög svo áhugaverðar stangir lausar hér og þar á okkar svæðum eins og sjá má á vefnum undir laus leyfi.