Strengir

EnglishEnglish

SpainEspañol

FranceFrançaise

GermanDeutsch

ItaliaItaliano

Suomalainen

 

Frábær veiði núna á Jöklusvæðinu

 Einn nýrunninn lax úr Jöklu sjálfri en hún er nú orðin tær aftur. Einn nýrunninn lax úr Jöklu sjálfri en hún er nú orðin tær aftur.

Það hefur verið illa bókað á Jöklusvæðinu í viku eða svo þar til 5 stangir hófu veiðar þar síðdegis í gær. Og þá var Jökla sjálf óðum að tærast enda yfirfallið nýfarið af Hálslóni sem er óvenju snemmt að hausti til. En það var aldeilis fjör því fyrstu vaktina lönduðu stangirnar 9 löxum og var það bæði í hliðaránum og í Jöklu sjálfri sem veiðin var í.

Og veiðin var góð einnig í morgun er undirritaður hafði samband við einn veiðimanninn þar, hann mátti ekki vera að því að tala í símann því félaginn var með hann á, en hringdi eftir löndun og eftir örstutt samtal þurfti hann að skella á því annar lax var komin á stöngina! Og morgunvaktin setti í 10 laxa en landaði 6 og var það bæði smálax og stórlax að veiðast og þar af um helmingur nýr eða nýlegur.
 
Veitt verður til 30. september í öllum okkar ám og stefnir Jöklusvæðið ásamt Fögruhlíðará í um 400 laxa ef fram fer sem horfir. Og Breiðdalsá fer væntanlega nálægt 500 löxum og Hrútan í um 200 laxa miðað við stöðuna. Frábær endasprettur en þó ekki óalgengt þarna fyrir austan því lax er að ganga þar alveg inn í októbermánuð!
 

Share

Veiðiþjónustan Strengir

Smárarimi 30

112 Reykjavík

Sími: 660 6890

Fax: 31 848679026

Netfang: ellidason@strengir.is

www.strengir.is