Strengir

EnglishEnglish

SpainEspañol

FranceFrançaise

GermanDeutsch

ItaliaItaliano

Suomalainen

 

Lokatölur og bókanir hafnar fyrir 2013!

Þá eru allar lokatölur komnar í hús fyrir þetta sumar og eins og víða eru laxveiðitölurnar í lærri kantinum hjá okkur einnig, og ekki hjálpaði til einstaklega erfið skilyrði í júlí og ágúst.

En skoðum sumarið nánar:

Glímt við lax í Breiðdalsá lokadaginn 30.septemberGlímt við lax í Breiðdalsá lokadaginn 30.september

Breiðdalsá gaf 464 laxa og þar var megnið stórlax og meðalþyngdin var um 5 kg. Laxveiðin byrjaði vel er fyrsta daginn 1. júlí veiddust 9 laxar, en fljótlega fór að halla undan fæti er vatn minnkaði hratt og smálaxagöngur í bland með stórlaxinum komu ekki. En aldrei var laxlaus dagur í júlí og ágúst og nýr lax að ganga alla daga eitthvað. Vegna flóða voru tveir laxlausir dagar í september en annars var það besti mánuðurinn með tæplega 200 laxa er vatn var gott og spónn var leyfður ásamt því að þá komu litlar göngur af smálaxi inn. Stórlaxinn var vænn og í góðum holdum, mikið yfir 80 cm og þrír um og yfir meterinn stærstir. Það fóru ekki margir laxlausir úr ánni því laxarnir dreifðust vel á stangirnar 6-8 og þó það væri ekki oft nema 1-3 laxar á stöngina í holli þá bætti stærðin það upp fyrir veiðimennina. Um 55% af veiðinni var veitt og sleppt, 20% drepin og þá smálax, en restin 25% var tekin í klak yfir veiðitímann og sett í kistur af veiðimönnum sem sérvalinn stórlax til undaneldis.
Silungsveiðin var tæplega 600 fiskar og meirihlutinn staðbundinn urriði á efri svæðum tekin snemma og seint er vatnið var í lagi. Sjóbleikjan var væn í ár, en var oft dreg að taka og virtist hafa nóg æti á ósasvæðinu. Lítið veiddist af laxi á á silungasvæðum fyrr en um haustið er laxinn fór ofar í vatnasvæðið með hækkandi vatni.

Lúsugur smálax úr Fossárgrjótum í Jöklu 29. September!Lúsugur smálax úr Fossárgrjótum í Jöklu 29. September!

 
Jökla og Fögruhlíðará var samtals með 384 laxa á stangirnar sex sem er ágætt veiði og alls ekki slæmt miðað við margar ár í sumar. Og hefðu þurrkarnir ekki leikið minni hliðarár Jöklu grátt í sumar og yfirfallið á Hálslóni komið í ágúst í stað september eins og var 2011, hefði veiðin verið síst minni en þá (565 laxar) og jafnvel meiri. Þann 1. ágúst var opnaður stigi við Steinbogann í Jöklu og lax gekk strax upp í Jökuldalinn og þar var hann að veiðast á glæsilegum nýjum veiðistöðum fram að yfirfalli. Tæplega helmingur veiddra laxa var sleppt aftur sem er mun hærra hlutfall en áður og lax var að ganga fram eftir öllum veiðitímanum til loka 30. september.
Og silungsveiðin var sú besta sem verið hefur á svæðinu, bæði í sjó- og staðbundinni bleikju, en sú síðarnefnda virðist vera í mikilli sókn upp alla Jöklu enda fæðuframboð árinnar mikið aukist við breytt lífsskilyrði þegar jökulvatnið er einungis stuttan tíma á hverju ári. Um 300 silungar veiddust á Jöklusvæðinu og tæplega 200 silungar í Fögruhlíðará og ósnum þar, sem er líka aukning frá fyrra ári.

Flott vatn var í Hrútu er þessi mynd var tekin í haustFlott vatn var í Hrútu er þessi mynd var tekin í haust

 
Hrútafjarðará endaði í 178 löxum og þar vantaði meiri lax eins og víðar, ásamt því að þurrkar voru með eindæmum miklir langt fram á sumar. Og þrátt fyrir betri aðstæður í september var lítið af laxi að ganga um haustið eins og oft áður. En það sem veiddist var bæði smálax og stórlax og nokkrir um og yfir 100 cm veiddust að vanda þetta sumarið sem fyrr. Um 30% var veitt og sleppt, sem er aukning en það var samt of mikið drepið af vænum laxi sem sárvantaði í hrygningu nú í haust og verður gengið harðar eftir því í framtíðinni að menn sleppi öllum laxi yfir 70cm eins og víða er skylda í dag.
Bleikjuveiðin var svipuð og verið hefur, á milli 100-200 fiskar en ef eitthvað var hún vænni en oft áður og bætti það upp laxveiðina að einhverju leyti.

 

Einn góður úr Stöðvarhyl í „Minni“Einn góður úr Stöðvarhyl í „Minni“

 

Minnivallalækur var með tæplega 300 urriða og þar af voru 8 fiskar á bilinu 5-8 kg sem er líklega fleirri af slíkri ofurstærð en verið hefur áður á einu sumri. Það er greinilegt að veiða og sleppa fyrirkomulagið er að auka fjölda þessarra sérstöku risa. Þeir sem koma í lækinn eru ekki að leita eftir mikilli veiði, heldur hinni einstöku stærð sem þar er að finna.

Það styttist í rjúpnaveiðina!Það styttist í rjúpnaveiðina!

 
Rjúpnaveiðin í haust er vel bókuð en þó gæti eitthvað verið laust á Jöklusvæðum fyrstu tvær helgarnar 26. - 28. október og 3. - 4. nóvember. Spyrjið um nánari upplýsingar.
 
Fyrir 2013 verður óbreytt verð og fyrirkomulag í Breiðdalsá, Hrútafjarðará og Minnivallalæk. Á Jöklusvæðinu verða breytingar, en þar verður vegna opnun laxastigans fjölgað stöngum á svæði Jöklu I og Fögruhlíðará um tvær frá 8. júlí og fram að miðjum ágúst. Fjölgað verður um tvö herbergi við Veiðihúsið Hálsakot til að bjóða áfram eitt herbergi fyrri hverja stöng við fjölgunina, og einnig fyrir starfsmenn og aðstaða þeirra stórbætt.  Fyrir  8. Júlí og eftir miðjan ágúst verður áfram óbreytt sex stangir á svæðinu. En það lengist að og með Hvannárbreiðu en þar er sleppitjörn sem lax safnast við. Í vinnslu er hvernig svæðinu þar fyrir ofan verður háttað 2013 eða Jökla II eins og það heitir, en þar var góð bleikjuveiði í sumar og væntanlega verður mikil laxveiðivon þar líka. Skýrist það fljótlega.

Hlakka til að heyra í ykkur,
 
Þröstur Elliðason

 

Share

Veiðiþjónustan Strengir

Smárarimi 30

112 Reykjavík

Sími: 660 6890

Fax: 31 848679026

Netfang: ellidason@strengir.is

www.strengir.is