Strengir

EnglishEnglish

SpainEspañol

FranceFrançaise

GermanDeutsch

ItaliaItaliano

Suomalainen

 

Eru þrjú veiðisvæði við Jöklu!

Jöklusvæðið er miklu meira en bara eitt veiðisvæði heldur þrjú og hefur verið þannig undanfarin ár, en tvö þeirra hafa verið lítið stunduð, Jökla II og Fögruhlíðarós. Vandamálið þar hefur verið gönguhindranir fyrir fisk á fyrrnefnda svæðinu og vantaði gistiaðstöðu einnig á báðum svæðum. En það stendur allt til bóta fyrir  sumarið 2013!  Og það eru breytingar einnig  á aðalsvæðinu Jökla I og Fögruhlíðará og við förum hér betur yfir svæðin til fróðleiks:

Frá opnun fiskvegarins við Steinbogann 1. ágúst og lax var farinn að ganga upp Jökuldalinn sama kvöld.Frá opnun fiskvegarins við Steinbogann 1. ágúst og lax var farinn að ganga upp Jökuldalinn sama kvöld.


Jökla I og Fögruhlíðará:  Í framhaldi af opnun fiskvegar upp fyrir Steinbogann lengist þetta svæði hátt í 10 km að og með Hvannárbeiðu þar sem sleppitjörn er í hliðaránni Hvanná. Og stöngum verður fjölgað um tvær úr sex og átta frá  8. Júlí til 13. ágúst enda meira en nóg pláss á þessu gríðarlega löngu svæði niður að Kaldárós, ásamt þveránum Kaldá og Laxá og einnig Fögruhlíðará ofan þjóðvegs. Og gistiaðstaðan verður stækkuð fyrir sumarið um tvö herbergi fyrir gesti í Veiðihúsinu Hálsakoti, ásamt því að það verður fjölgað herbergjum fyrir starfsfólk þar einnig. Og er stefnt að því að byggja líka lítið hús á veröndinni með gufubaði og ásamt því að það verða gerðar aðrar endurbætur til að uppfæra aðstöðuna enn frekar, en var hún þó góð fyrir. Sleppingar hafa verið auknar á þessu svæði og það ásamt hækkun á árleigum, og einnig stækkun og endurbótum á veiðihúsi kallar á hækkun á verði veiðileyfa og gistiaðstöðu fyrir 2013.

Lax úr Hneflu sem er hliðará á Jöklu II svæðinuLax úr Hneflu sem er hliðará á Jöklu II svæðinu

Myndband frá Jöklu II


Jökla II: Þetta er sex stanga svæði ofan Hvannárbreiðu í Jöklu ásamt þverám. Þar ber hæst Hnefilsdalsá (Hnefla) en þar er sleppitjörn og lax hefur gengið einstaka sinnum þangað þegar fært var yfir gönguhindrunina við Steinboga. Nú er tryggð örugg fiskför upp á þetta svæði í fyrsta sinn ásamt því að slepping  sumaralina seiða á þetta víðfema svæði undanfarin ár  gæti gefið góðar göngur af laxi þarna upp eftir í sumar. Og verðið er hóflegt eða á bilinu kr. 3.000- 9.000 stangardagurinn sem er líklega „bestu kaupin á eyrinni“ á landinu ef lax fer að veiðast þarna að ráði. Og bleikja er í mikilli sókn á svæðinu líka og verður vænni með hverju árinu. Veiðimaðurinn
Snævarr Örn Georgsson hefur veitt töluvert á þessu svæði og hefur sett saman myndband hér um veiði þarna meðal annars.  Hægt er að fá gistingu á „Gistiheimilinu Skjöldólfsstöðum“ sem er í Jökuldal rétt við ána og veiðibókin fyrir svæðið verður þar væntanlega líka. Tilvalið svæði fyrir hópa á hóflegu verði!
 

Húsið á Breiðumörk sem verður veiðihús fyrir veiðimenn í Fögruhlíðarós og Jökluósum næsta sumar.Húsið á Breiðumörk sem verður veiðihús fyrir veiðimenn í Fögruhlíðarós og Jökluósum næsta sumar.

Fögruhlíðarós: Frábært sjóbleikjusvæði ásamt því að innifalið er að veiða í Jöklu neðan ósa Kaldár og að ósum Jöklu, en það svæði hefur verið lítið stundað til þessa og góð laxavon þar líka.  Einungis þrjár stangir og nú er gisting uppbúinn að bænum Breiðumörk í Jökulsárhlíð innifalin í veiðileyfinu sem kostar á bilinu kr. 14.800-19.800 stöngin á dag. Góð aðstaða, þrjú svefnherbergi, stór stofa, eldhús, eitt baðherbergi og þurrkherbergi fyrir veiðifatnað. Hægt er að kaupa líka veiðileyfi með stuttum fyrirvara án gistingar og þá kostar á kr. 9.000 dagurinn. Frábær kostur fyrir smærri hópa sem vilja vera út af fyrir sig eða stærri hópa og taka þá Jöklu II með í pakkanum!
 
Veiðibílar ehf verða með Grand Cherokee jeppa á flugvellinum á Egilsstöðum sumarið 2013 á mjög svo hóflegu verði eða um kr. 20 þús daginn. Aðeins 30 min akstur að Jöklu þaðan og um klst í Breiðdal svo ferðatíminn verður þá einungis á bilinu 1-1/2  til 2-1/2 klst frá Reykjavík í þessar ár!
 
Vil minna á Gjafabréf okkar  sem er tilvalinn jólagjöf veiðimannins, hafið samband og ég sendi gjafabréfið um hæl ef gefið er upp kreditkort við pöntun!

 

Share

Veiðiþjónustan Strengir

Smárarimi 30

112 Reykjavík

Sími: 660 6890

Fax: 31 848679026

Netfang: ellidason@strengir.is

www.strengir.is